Innlent

Braust inn og borðaði afgangana

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lögreglan hafði nóg að gera í gærkvöldi og í nótt.
Lögreglan hafði nóg að gera í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Eyþór
Karlmaður var handtekinn í nótt eftir að hann braust inn í hús í Bústaðahverfinu og gerði sig heimakominn þar.

Húsráðandi vaknaði við læti í eldhúsinu og fór að athuga málið að því er kemur fram í dagbók lögreglu. Þegar í eldhúsið var komið sat þar maður og gæddi sér á afgöngum kvöldsins. Var lögregla kölluð til og hinn óboðni gestur handtekinn.

Lögregla hafði í ýmis horn að líta í gærkvöldi og í nótt eins og hægt var að fylgjast með á Twitter en lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og á Norðurlandi eystra héldu svokallað Löggutíst í gær þar sem tíst var um öll verkefni lögreglunnar.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×