Innlent

Braust inn og barði húsráðanda með leikfangasverði

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Aðalmeðferð málsins fór fram í Héraðsdómi Suðurlands.
Aðalmeðferð málsins fór fram í Héraðsdómi Suðurlands. vísir/óká
Ríkissaksóknari höfðar nú mál gegn Baldri Kolbeinssyni sem gefið er að sök að hafa brotist inn í hús við Fífuhvamm í Kópavogi 4.febrúar síðastliðinn og ráðist þar á húsráðanda og hótað honum og fjölskyldu hans lífláti. Aðalmeðferð málsins fór fram í Héraðsdómi Suðurlands í gær. Baldur neitar sök í málinu.

„Ég vakna við hávaða og heyri hávaðann koma úr herbergi eldri stráksins. Ég kveiki ljósið og sé mann gramsa í skrifborðinu og hann heldur á veskinu mínu,“ segir annar húsráðanda, kona, í vitnaleiðslum í Héraðsdómi Suðurlands í gær.

Barði húsráðanda í höfuðið með geislasverði

Konan segir eiginmann sinn hafa komið inn í herbergið og reynt að taka það sem maðurinn hafði tekið úr herbergi stráksins, sjö ára drengs, um það bil fimmtán þúsund krónur. Við það hafi þjófurinn reiðst og barið eiginmann hennar í höfuðið með leikfangasverði. Maðurinn slasaðist ekki en fann fyrir eymslum á höfði.

„Hann lamdi hann með eins konar dótageislasverði. Ég kalla á hann, segi honum að sleppa þessu og segi honum að hann þurfi að fara út,“ segir hún. „Hann hleypur niður og kallar áður en hann fer að hann muni drepa okkur ef við hringdum á lögregluna,“ segir hún og bætir við að maðurinn hafi líklega verið vímaður, hann hafi borið öll merki þess.

Hjónin hringdu á lögregluna eftir að maðurinn hljóp á brott og fannst maðurinn skammt frá heimili þeirra, rennvotur að sögn lögreglu. „Hann var allur rennandi blautur, en peysan hans var skrjáfa þurr,“ segir lögregla í vitnastúku en gaf engar frekari skýringar á því.

Komst inn um ólæstar dyr

Þjófurinn komst inn um ólæstar dyr hússins. „Við gleymdum að læsa útidyrahurðinni en það kemur ekki fyrir aftur. Við fórum strax í það að láta setja upp þjófavarnakerfi,“ segir hún.

Ríkissaksóknari höfðar nú samtals þrjú mál gegn Baldri Kolbeinssyni, 23 ára síbrotamanni.  Er hann ákærður fyrir fólskulega árás á samfanga sinn ásamt því að hafa ráðist á og troðið mannasaur í munn annars samfanga síns. Baldur afplánar nú dóm í fangelsinu við Litla-Hraun, meðal annars fyrir líkamsárás og eignarspjöll.


Tengdar fréttir

"Ég öskraði og fangaverðirnir komu“

"Reiðin í andliti hans er mér minnistæðust,“ segir starfsmaður Litla-Hrauns sem í dag bar vitni í máli Matthíasar Mána Erlingssonar sem varð fyrir fólskulegri líkamsárás samfanga sinna í samnefndu fangelsi á síðasta ári.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×