Erlent

Braust inn í lögreglustöð en hélt að um skóla væri að ræða

Samúel Karl Ólason skrifar
Maðurinn braust inn í þessa lögreglustöð.
Maðurinn braust inn í þessa lögreglustöð. Mynd/Lögreglan í Shelburne
Karlmaður í Vermont í Bandaríkjunum braut sér leið inn í lögreglustöð en hélt þó að hann væri að brjótast inn í skóla. Lögreglan segir hann hafa notað umferðarkeilu til að brjóta sér leið í gegnum dyr lögreglustöðvarinnar.

AP fréttaveitan segir frá því að maðurinn sé 59 ára gamll, en hann sagði lögreglunni að hann væri að leita sér að hlýjum stað til að koma sér fyrir á.

Hann var handtekinn af lögregluþjónum í stöðinni og bíður eftir að réttað verði yfir honum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×