Lífið

Brast í grát þegar hún fékk loksins að hitta Gretu Salóme

Birgir Olgeirsson skrifar
Hér má sjá þegar Greta Salóme hitti þennan harða stuðningsmann sinn á Hard Rock í Stokkhólmi í gær.
Hér má sjá þegar Greta Salóme hitti þennan harða stuðningsmann sinn á Hard Rock í Stokkhólmi í gær.
Þrátt fyrir að hennar þátttöku sé lokið í Eurovision hefur Greta Salóme ekki setið auðum höndum í Stokkhólmi í Svíþjóð. Greta fór og hitti aðdáendur sína í gær þar sem hún kom meðal annars fram í EuroVillage og kíkti við á samkomu Eurovision-aðdáenda á Hard Rock í Stokkhólmi en um var að ræða svokallað WiWi-djamm.

Þar hitti Greta Salóme fyrir einn harðasta aðdáanda sinn sem brast í grát þegar hún fékk loksins að hitta Gretu Salóme og var sannarlega svekkt yfir því að hún komst ekki áfram upp úr undanriðlinum síðastliðið þriðjudagskvöld.

Um er að ræða konu frá Ungverjalandi sem hefur verið í samskiptum við Gretu í gegnum samfélagsmiðla frá því Greta vann Söngvakeppni Sjónvarpsins í febrúar síðastliðnum.

Konan gaf Gretu gjafir á Hard Rock í gær og fór svo að Greta Salóme dró hana upp á svið til að þakka henni fyrir stuðninginn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×