Fótbolti

Brandur genginn til liðs við FH

Dagur Lárusson skrifar
Brandur í leik með FCK.
Brandur í leik með FCK. vísir/getty
FH hefur gengið frá kaupum á færeyska landsliðsmanninum Brand Olsen frá danska liðinu Randers en Fimleikafélagið staðfesti þetta fyrr í dag.

Brandur Olsen er 22 ára miðjumaður en hann hefur leikið í Danmörku frá árinu 2014 en þá var hann keyptur til FCK þar sem hann var til ársins 2016 þegar hann gekk til liðs við Randers.

Brandur er lykilmaður í færeyska landsliðinu en hann hefur skorað þrjú mörk í sextán landsleikjum en hann skoraði meðal annars gegn Grikkjum í undankepnni EM árið 2015 í sjaldgæfum sigri.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×