Golf

Branden Grace hafði sigur eftir spennuþrunginn lokahring í Katar

Grace hafði ríka ástæðu til að fagna á lokaholunni dag.
Grace hafði ríka ástæðu til að fagna á lokaholunni dag. Getty
Suður-Afríkumaðurinn Branden Grace sigraði á Bank Qatar Masters sem kláraðist nú um hádegisbilið en gríðarleg spenna einkenndi lokahringinn þar sem úrslit réðust ekki fyrr en á síðustu holu.

Fyrir hringinn deildu þeir Bernd Wieseberger, Marc Warren og Brendan Grace forystunni en þeir héldust í hendur á lokahringnum og þegar að þrjár holur voru eftir sátu þeir enn saman í fyrsta sæti á 16 höggum undir pari. Þá tók Brendan Grace til sinna mála og nældi sér í glæsilegan örn á stuttri par fjögur holu en hann innsiglaði síðan sigurinn með góðum fugli á lokaholunni.

Grace sigraði því á 19 höggum undir pari en Marc Warren frá Skotlandi nældi sér í annað sætið á 18 höggum undir meðan að Austurríkismaðurinn Wieseberger þurfti að sætta sig við það þriðja.

Sigurinn hjá Grace er hans sjötti á Evrópumótaröðinni á aðeins þremur árum en hann sigraði síðast á Alfred Dunhill meistaramótinu sem fram fór í desember á síðasta ári.

Næsta mót á Evrópumótaröðinni fer fram í Dubai í næstu viku en þar verða margir af bestu kylfingum heims meðal þátttakenda, meðal annars Rory McIlroy, Martin Kaymer, Sergio Garcia og Henrik Stenson.

Þrátt fyrir að Bank Qatar Masters hafi klárast í dag er enn mikið golf óleikið um helgina en í Kaliforníuríki fer fram Humana Challenge sem partur er af PGA-mótaröðinni. Eftir tvo hringi þar er reynsluboltinn Matt Kuchar í forystu en bein útsending frá mótinu verður á Golfstöðinni frá klukkan 20:00 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×