Menning

Brandararnir fá fólk til þess að hugsa

Gyða Lóa Ólafsdóttir skrifar
Noom Diawara og Medi Sadoun eru góðir félagar og skemmtu sér vel við tökur myndarinnar.
Noom Diawara og Medi Sadoun eru góðir félagar og skemmtu sér vel við tökur myndarinnar. Vísir/Ernir
Opnunarmynd Frönsku kvikmyndahátíðarinnar er myndin Qu‘est-ce qu‘on a fait au Bon Dieu? eða Ömurlegt brúðkaup sem Philippe de Chauveron leikstýrði.

Tveir af aðalleikurum myndarinnar, Noom Diawara og Medi Sadoun, eru staddir hér á landi í tilefni af hátíðinni.

„Maður vaknar klukkan tíu og það er enn þá dimmt úti, það er yndislegt. En það er bara af því að mér finnst gott að sofa,“ segir Sadoun hlæjandi þegar hann er spurður hinnar klassísku spurningar um hvernig þeim félögum lítist á landið.

„Við komum bara hingað í fyrradag, en við munum prufa hákarlinn,“ bætir Diawara spenntur við.

Ömurlegt brúðkaup hefur átt miklum vinsældum að fagna í heimalandi sínu og um tólf milljónir hafa séð myndina sem fjallar um Verneuli-hjónin, fjórar dætur þeirra og jafnmarga tengdasyni.

Hjónin eru vel stæð, vel menntuð og kaþólsk. Þeirra heitasti draumur er að dætur þeirra giftist kaþólikkum en þrjár þeirra eru þegar giftar mönnum af ólíkum uppruna og með ólíkar trúarskoðanir. Þau binda því allar sínar vonir við yngstu dótturina. Þegar hún tilkynnir þeim að hún sé trúlofuð kaþólikka eru hjónin í skýjunum en þurfa fljótlega að horfast í augu við og takast á við fordóma sína.

Í myndinni er gert stólpagrín að fordómum og skilaboðin eru skýr. „Raunverulegt viðfangsefni myndarinnar er að burtséð frá því hversu ólík við erum þá getum við öll lifað saman í sátt og samlyndi. En það verða að vera einhverjir brandarar, sérstaklega af því að fólk vill ekki láta sér líða eins og það sé verið að predika yfir því. Ef þú segir það í gegnum brandara þá skilur fólk það. Og þá sér fólk hvað það getur verið vitlaust stundum,“ segir Diawara hlæjandi og bætir við: „Og hugsar með sér: ég geri líka svona vitleysu, kannski þarf ég að breytast? Og svo breytist það kannski eitthvað smá.“

Tökur myndarinnar stóðu yfir í um tvo mánuði og þeir segja það hafa verið skemmtilegan tíma sem einkenndist af hlátri.

„Við þekktumst aðeins fyrir og þetta voru tveir mánuðir af tökum, hlátri og vinskap,“ segir Diawara og bætir við að eftir að tökum lauk séu þeir í miklu sambandi, hringist á og hittist oft.

Sadoun tekur í sama streng og segir að þegar svo góð orka og vinátta verði til skili það sér í gæðum myndarinnar. Í næsta mánuði hefur hann tökur á nýrri mynd en mótleikari hans er enginn annar er franski stórleikarinn Gerard Depardieu.

Diawara, sem er einnig uppistandari, hefur nýlega lokið við að skrifa nýtt uppistand og er einnig með gamanmynd í bígerð.

„Fólk þarf að hlæja. Ég held að það sé mjög mikilvægt. Fara aðeins frá veruleikanum. Þú kemur í bíó og í einn og hálfan tíma gleymir þú öllum vandamálum þínum og ferð heim léttur og frjáls,“ segi Diawara og Sadoun bætir við: „Hláturinn er besta meðalið.“

Franska kvikmyndahátíðin fer nú fram í fimmtánda sinn hérlendis og stendur yfir til 2. febrúar. Dagskrá hennar er hægt að nálgast á vefsíðunni Fff-is.com.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×