Lífið

Brand vill deit með Concitu

Adda Soffia Ingvarsdóttir skrifar
Conchita og Russell eru frekar lík í útliti.
Conchita og Russell eru frekar lík í útliti. Vísir
Grínistinn Russell Brand tilkynnti í hlaðvarpsþætti sínum að hann væri meira en til í að fara á tvöfalt stefnumót með Conchita Wurst, sem sigraði Eurovision eftirminnilega í fyrra.

Félagi Brand í þættinum, Matt Morgan, ætlar sér að fara með á stefnumótið, en Wurst á víst vin sem heitir einnig Matt Morgan. Þeim félögum fannst þetta því tilvalið tækifæri.



„Ef einhver þekkir hana eða ef þú ert að hlusta, komdu þá til mín!" sagði Brand í þættinum.



Brand er mikill aðdáandi Wurst en þegar hún keppti í Eurovision í fyrra setti hann innmyndir af sér á twitter í gervi hennar þar sem hann sagði: „Ég er venjulega ekki með kosningaáróður,en kjósið mig í Eurovision!"






Fleiri fréttir

Sjá meira


×