Matur

Brakandi ferskt humarsalat

Eva Laufey Kjaran skrifar
Góðar uppskriftir með hækkandi sól.
Góðar uppskriftir með hækkandi sól. Vísir/Stöð 2

Með hækkandi sól er tilvalið að dusta rykið af grillinu og bjóða sumarið velkomið með ljúffengum ilm af grillmat.

Hér deili ég með nokkrum uppáhaldsréttum mínum úr lokaþætti Matargleði Evu Laufeyjar á Stöð 2 sem passa í hvaða veislu sem er. Þáttinn er hægt að sjá í heild sinni í spilaranum neðst í fréttinni.

Hvítlaukshumar á salatbeði

600 – 700 g humarhalar

100 g smjör

3 hvítlauksrif

1 rautt chili, fræhreinsað

Handfylli steinselja

Börkur af hálfri sítrónu

Skvetta af hvítvíni

Safi af hálfri sítrónu

Salt og pipar

Hitið smjör í potti. Saxið niður hvítlauk, chili og steinselju og bætið út í smjörið. Sjóðið í smástund við vægan hita.

Takið pottinn af hitanum og undirbúið humarinn.

Mér finnst ágætt að nota álform þegar ég er að grilla humar en þið getið auðvitað sett hann beint á grillið.

Klippið humarhalana og hreinsið görnina úr, ekki taka humarinn alveg úr skelinni heldur leyfið honum að hanga föstum á halaendanum. Það er best að gera þetta við vaskinn áður en þið farið með humarinn út.

Dreifið smjörsósunni yfir humarhalana og hellið hvítvíni yfir og kreistið hálfa sítrónu í lokin.

Kryddið til með salti og pipar.

Það er ágætt að leyfa humrinum að standa í ca. 30 mínútur áður en þið setjið hann á grillið en þannig nær hann að marinerast fullkomlega.

Grillið humarinn á háum hita í nokkrar í ca. 5 – 6 mínútur.

Berið fram með hvítlaukssósu og fersku salati. Sagði einhver meiri hvítlauk? Já, takk.



Hvítlaukssósa


150 ml sýrður rjómi

2 hvítlauksrif

Salt og pipar

Safi úr hálfri sítrónu

Setjið sýrða rjómann í skál, bætið maukuðum hvítlauknum út í ásamt sítrónusafanum, salti og pipar. Blandið öllu vel saman og það er ágætt að leyfa sósunni að jafna sig í ísskáp í hálftíma til klukkustund áður en þið berið hana fram með humrinum.

Skerið niður gott grænmeti og ávexti og leggið humarhalana yfir og njótið með hvítlaukssósunni góðu.

Vísir/Stöð 2

Grillaður ananas með karamellusósu 

Ferskur ananas, niðursneiddur

80 g smjör

3 msk. púðursykur

1 tsk. kanill 

Hitið smjör í potti og bætið púðursykrinum og kanil út í, leyfið þessu að malla í smástund og takið af hitanum. Skerið ananasinn niður og penslið kryddsmjörinu á hann. Það er ágætt að geyma hann í ísskáp í svolitla stund áður en þið grillið hann. 

Grillið sneiðarnar í 2 – 3 mínútur á hvorri hlið og berið fram með góðum vanilluís og karamellusósu. Bætið smávegis af rjóma út í afganginn af smjörblöndunni og hitið í smástund þar til sósan þykknar. 

Vísir/Stöð 2

Piña colada 

4 dl frosinn ananas 

2 dl ananassafi 

1 dl kókosmjólk

Skvetta af sítrónusafa 

Allt blandað í blandara þar til drykkurinn verður silkimjúkur.

Berið strax fram og njótið.

Hér fyrir neðan má sjá lokaþátt Evu Laufeyjar í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×