Lífið

Bræðrahópur býður litlu systur velkomna: „Hún er miklu sætari en ég hélt!“

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Houston, 5 ára, smellir kossi á litlu systur.
Houston, 5 ára, smellir kossi á litlu systur. vísir
Myndband sem sýnir sex bræður bjóða litlu systur sína velkomna í heiminn er mögulega það krúttlegasta sem internetið hefur upp á að bjóða í dag.

 

Á myndbandinu má sjá bræðurna sex, sem eru á aldrinum 2 til 13 ára, halda á litlu systur sinni, knúsa hana og kyssa. Börnin búa ásamt foreldrum sínum í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum.

Þeir eru vægast sagt ánægðir með nýjasta fjölskyldumeðliminn en einn bræðranna hefur á orði að hún sé miklu sætari en hann hefði haldið.

Myndbandið má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×