Sport

Brady skrifaði undir risasamning

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tom Brady.
Tom Brady. vísir/getty
Tom Brady er búinn að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við New England Patriots.

Brady verður orðinn 39 ára er næsta tímabil hefst og hann verður elsti leikmaður deildarinnar sem er ekki sparkari.

Á þessum tveim árum fær Brady rúma fimm milljarða króna. 3,5 milljarðar af þessari upphæð er bónus sem hann fékk við undirskrift.

Brady hefur verið einn besti leikmaður deildarinnar síðustu ár og sýndi á síðasta tímabili að hann á nóg eftir.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×