Sport

Brady fékk boltann aftur

Brady gefur hér skipanir gegn Jacksonville Jaguars um helgina.
Brady gefur hér skipanir gegn Jacksonville Jaguars um helgina. Vísir/Getty
David Bowen, stuðningsmaður New England Patriots, skilaði Tom Brady, leikstjórnanda liðsins, boltanum sem Danny Amendola gaf honum eftir að hafa gripið snertimarkssendingu 400 hjá Brady.

Brady varð um helgina aðeins fjórði leikstjórnandinn í sögunni sem nær að kasta 400 snertimarkssendingum á eftir Peyton Manning (535), Brett Favre(508) og Dan Marino(420).

Eftir að hafa skorað snertimarkið sem um ræðir hljóp útherjinn Amendola til stuðningsmanns liðsins og gaf honum boltann eins og venja er í Bandaríkjunum en stuðningsmaðurinn gerði sér grein fyrir því hvað hefði gerst og skipti um bolta við boltastrák.

Til þess að þakka honum fyrir það samþykkti Brady að hitta Bowen í gær og árita varning sem Bowen átti ásamt því að brosa á bolamynd með honum en myndband af því má sjá hér.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×