Sport

Brady: Peyton fullkomnaði fótboltann

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Brady og Manning eftir síðasta einvígi þeirra í janúar síðastliðnum.
Brady og Manning eftir síðasta einvígi þeirra í janúar síðastliðnum. vísir/getty
Eitt stærsta íþróttaeinvígi aldarinnar hefur verið á milli leikstjórnendanna Peyton Manning og Tom Brady. Tveir af þeim bestu til að spila í NFL-deildinni.

Manning tilkynnti í kvöld að hann hefði lagt skóna á hilluna eftir 18 ára feril. Hann verður fertugur eftir nokkra daga en hnn 38 ára Brady ætlar að spila nokkur ár í viðbót.

„Það er alveg ömurlegt að fá ekki að spila aftur á móti honum,“ sagði Brady sem talar afar vel um Peyton.

„Ég hef horft á hvern einasta leik sem hann hefur spilað. Ég er með möppur á tölvunni minni um hann og hvernig hann spilar. Það myndi taka mig mörg ár að horfa á þetta allt aftur.“

Brady hafði betur í 11 leikjum af 17 gegn Peyton en laut í lægra haldi í ár og Peyton fór svo alla leið með sitt lið.

„Það er ótrúlegt hvað hann hefur afrekað í Denver og hann endaði ferilinn á hinn fullkomna hátt. Það er samt allt sem hann hefur afrekað á ferlinum sem er svo aðdáunarvert. Hann hefur verið undir pressu allt sitt líf.

„Hann var stjarnan í menntaskóla, aðalmaðurinn í háskólanum og svo valinn fyrstur í nýliðavalinu. Hann hefur staðið undir væntingum ár eftir ár. Hver hefur gert það eins vel og Peyton? Hann hefur líka gert það af reisn. Hann setti markið fyrir okkur hina um hvernig eigi að spila leikstjórnandastöðuna,“ sagði Brady en hann segist hafa lært af Manning hversu mikilvægt það sé að leggja mikið á sig.

„Ég áttaði mig á því hvaða vinnu þarf til svo maður verði frábær. Ég horfði á hann gera það. Þetta er engin níu til fimm vinna heldur skulbindur maður sig fyrir lífstíð. Fótbolti er íþrótt, list og trú. Peyton fullkomnaði fótboltann.“

NFL

Tengdar fréttir

Peyton fór í Disneyland

"I´m going to Disneyland“ var vinsæl lína hjá bandarískum íþróttamönnum er þeir unnu stórviðburði. Minna hefur farið fyrir þessum frasa á síðustu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×