Leikjavísir

Bráðum verður hægt að klifra Everest í sýndarveruleika

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Sýndarveruleiki er gífurlega vinsæll meðal áhugamanna sem keppast um að prófa tækin á tæknisýningum víða um heim.
Sýndarveruleiki er gífurlega vinsæll meðal áhugamanna sem keppast um að prófa tækin á tæknisýningum víða um heim. Vísir/AFP
Íslenska leikjafyrirtækið Sólfar Studios tilkynnti í dag að fyrirtækið myndi, í samvinnu við RVX, fyrirtækið sem sá um tæknibrellur í kvimyndinni Everest, framleiða svokallaða sýndarveruleika útgáfu af Everest, hæsta tindi veraldar. Sólfar Studios hefur safnað háum fjárhæðum frá fjárfestingasjóðum til verksins.

Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að markmiðið með sýndarveruleikaútgáfunni af Everest sé að færa upplifuna á því að klífa þennan hæsta tind jarðar heim í stofu, enda fæstir sem fái tækifæri á því að klífa fjallið sjálft.

Sjá einnig: Stríðið um sýndarheima hefst

Hugmyndin er að sá sem spili leikinn er einföld. Menn byrja í grunnbúðum og fikra sig upp fjallið, allt í sýndarveruleika sem Sólfar hyggjast vinna í samvinnu við RVX, fyrirtækið sem sá um tæknibrellurnar í nýjustu kvikmynd Baltasar Kormáks.

Samhliða var tilkynnt fyrirtækið hefði lokið fjármögnun frá hópi íslenskra, finnskra og kínverskra fjárfestingarsjóða: NSA, Shanda Group, Inventure og Reaktor Ventures. Í heildina safnaði fyrirtækið 285 milljónum króna sem nýta á í þróun Everest VR.

Sjá einnig: Þurfti að búa til fallegt Everestfjall

Þróun tölvuleikja sem nýta sér sýndarveruleika hefur færst í aukana að undanförnu. Íslenski leikjaframleiðandinn CCP lagði til að mynda mikla áherslu á að kynna nýjasta sýndarveruleikaleik sinn, EVE:Valkyrie, á Eve Fanfest í vor.

Stofnendur Sólfars eru Reynir Harðarson, Kjartan Pierre Emilsson og Þorsteinn Högni Gunnarsson en þeir hafa allir unnið í tölvuleikja og hugbúnaðargeiranum í liðlega 20 ár. Nú síðast hjá CCP þar sem þeir voru í stjórnendahóp til margra ára.


Tengdar fréttir

Sýndarveruleiki það sem koma skal

EVE Fanfest hátíðin hófst í dag í ellefta sinn og stendur fram yfir helgi. Í ár leggur tölvuleikjafyrirtækið CCP áherslu á nýjustu tilraunir sínar á sviði sýndarveruleika.

Vilhjálmur fjárfestir í Sólfari

Nýtt íslenskt leikjafyrirtæki, Sólfar Studios, lauk í dag hlutafjáraukningu með þátttöku breiðs hóps erlendra og innlendra fjárfesta.

Stríðið um sýndarheima hefst

Oculus Rift-sýndarveruleikagleraugun verða fáanleg snemma á næsta ári. Bylting er í vændum í tölvuleikjaiðnaðinum og hið íslenska fyrirtæki CCP, ásamt öðrum, er í framvarðasveit hennar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×