Lífið

Bradley Cooper mögulega trúlofaður

Stórstjörnuparið lætur fjarlægðina ekki á sig fá.
Stórstjörnuparið lætur fjarlægðina ekki á sig fá. vísir/getty
Stórleikarinn Bradley Cooper og fyrirsætan Suki Waterhouse hafa verið saman í tæp tvö ár en nýverið sáust þau á breska staðnum The Chiltern Firehouse þar sem þau báru bæði gylltan hring á baugfingur vinstri handar. Eins og flestir ættu að vita þá bendir það til trúlofunar.

Hinsvegar þá hafa þau ekki sést með hringana síðan en halda samt fjarsambandinu gangandi með því að fljúga á milli Los Angeles og London til þess að eyða tíma saman en þau starfa einmitt í sitthvoru landinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×