Bíó og sjónvarp

Bráðfyndin stikla úr væntanlegri kvikmynd Coen-bræðra

Birgir Olgeirsson skrifar
Bræðurnir Ethan og Joel Coen hafa sent frá sér fyrstu stikluna í væntanlegri kvikmynd þeirra Hail, Caesar! Myndin gerist á gullaldarárum Hollywood og segir frá leikara, leikinn af George Clooney, sem má muna fífil sinn fegurri.

Svo fer að leikaranum er rænt á meðan tökur standa yfir á nýrri stórmynd og neyðist yfirmaðurinn, leikinn af Josh Brolin, til að leita eftir hjálp til persóna sem Scarlett Johansson og Jonah Hill leika.

Á meðal annarra leikara eru Tilda Swinton, Channing Tatum, Ralph Fiennes, Frances McDormand og Dolph Lundgren en myndin verður frumsýnd í febrúar í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×