Bíó og sjónvarp

Boyhood valin best hjá Empire

Freyr Bjarnason skrifar
Boyhood er besta mynd ársins 2014 að mati tímaritsins Empire.
Boyhood er besta mynd ársins 2014 að mati tímaritsins Empire.
Breska kvikmyndatímaritið Empire hefur tekið saman lista yfir fimmtíu bestu kvikmyndir ársins 2014.

Í efsta sætinu er hin óvenjulega Boyhood sem var tekin upp á ellefu ára tímabili. Myndin fjallar um barn og fjölskyldu þess og hvernig þau þroskast saman á ellefu árum. Empire lýsir myndinni sem litlu kraftaverki og hrósar stjörnu myndarinnar, Ellar Coltrane, í hástert. Á meðal annarra leikara eru Patricia Arquette og Ethan Hawke.

Leikstjóri þessarar 165 mínútna myndar er Richard Linklater, sem hefur áður gert myndir á borð við After the Sunset, Before Sunrise, School of Rock og Dazed and Confused.

Í öðru sæti á listanum er Nightcrawler með Jake Gyllenhaal í aðalhlutverki. Hún fjallar um siðblindan glæpafréttamann sem verður aðalstjarnan í sinni eigin frétt.

„Svartasti húmor myndarinnar er hversu vel hann [persóna Gyllenhaal] passar inn í fréttaumhverfið eftir að hann plantar sér niður á sjónvarpsstöð í LA,“ segir Empire. Aðrir helstu leikarar eru Rene Russo, Riz Ahmed og Bill Paxton. Leikstjóri er Dan Gilroy og er þetta hans fyrsta mynd.

Nightcrawler
The Wolf of Wall Street er í þriðja sætinu í leikstjórn Martins Scorsese. „Leonardo DiCaprio er svo heillandi sem aðalhálfvitinn Jordan Belfort að mörgum fannst boðskapur myndarinnar ekki komast til skila.“ Aðrir leikarar eru m.a. Jonah Hill, Margot Robbie, Matthew McConaughey og Rob Reiner.

Fjórða besta myndin er hin lágstemmda Inside Llewyn Davis frá Coen-bræðrum. „Inside Llewyn Davis er fullkominn minnisvarði um andrúmsloftið í Greenwich Village á sjöunda áratugnum.“

Í fimmta sætinu á listanum er svo Guardians of the Galaxy sem er gerð eftir samnefndri myndasögu. „Hún er klók, fyndin og tónlistin í henni er rosaleg.“ Chris Pratt sló í gegn með leik sínum í myndinni en á meðal annarra leikara eru Zoe Saldana, Dave Bautista, Vin Diesel og Bradley Cooper. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×