Enski boltinn

Boyd til Burnley

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
George Boyd fagnar marki í leik með Hull.
George Boyd fagnar marki í leik með Hull. Vísir/Getty
Burnley hefur fest kaup á skoska kantmanninum George Boyd frá Hull City. Hann er sjöundi leikmaðurinn sem Sean Dyche, knattspyrnustjóri Burnley, fær til félagsins í sumar.

Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp, en Boyd skrifaði undir þriggja ára samning við Burnley sem eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni. Boyd mun klæðast treyju númer 21 hjá Burnley.

Boyd lék 29 deildarleiki með Hull á síðustu leiktíð og skoraði tvö mörk. Hann gekk til liðs við Tígranna frá Peterborugh United í maí 2013.

Boyd hefur leikið tvo landsleiki fyrir Skotland.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×