Enski boltinn

Boruc ver mark Bournemouth á næsta tímabili

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Boruc átti þátt í að koma Bournemouth upp um deild.
Boruc átti þátt í að koma Bournemouth upp um deild. vísir/getty
Bournemouth hefur tryggt sér þjónustu markvarðarins Artur Boruc fyrir næsta tímabil.

Boruc, sem er 35 ára, lék sem lánsmaður hjá Bournemouth á nýliðnu tímabili og hélt marki sínu 18 sinnum hreinu í 39 leikjum með Bournemouth sem tryggði sér sæti í ensku úrvalsdeildinni í vor.

Boruc var í láni frá Southampton sem lét hann fara á dögunum. Pólverjinn er ekki eini leikmaðurinn sem Southampton lét fara en auk hans yfirgáfu Jos Hooiveld, Cody Cropper, Chris Johns, Omar Rowe og Jake Sinclair félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×