Fótbolti

Börsungar í sjöunda himni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Messi og Neymar voru óstöðvandi í kvöld.
Messi og Neymar voru óstöðvandi í kvöld. vísir/getty
Lionel Messi skoraði þrennu þegar Barcelona rúllaði yfir Celtic, 7-0, á Nývangi í C-riðli.

Það tók Börsunga aðeins þrjár mínútur að ná forystunni. Messi skoraði þá með þrumuskoti eftir sendingu frá Neymar.

Gestirnir fengu upplagt tækifæri til að jafna metin á 24. mínútu þegar rúmenski dómarinn Ovidiu Hategan dæmdi vítaspyrnu á Marc-André ter Stegen. Þjóðverjinn bætti hins vegar upp fyrir mistökin með því að verja spyrnu Moussa Dembele.

Þremur mínútum síðar var Messi aftur á ferðinni. Hann skoraði þá af stuttu færi eftir frábært samspil við Neymar.

Brasilíumaðurinn skoraði svo þriðja markið með skoti beint úr aukaspyrnu á 50. mínútu.

Neymar var ekki hættur og níu mínútum síðar lagði hann upp mark fyrir Andrés Iniesta sem þrumaði boltanum í netið.

Aðeins mínútu síðar fullkomnaði Messi þrennuna þegar hann stýrði boltanum í netið eftir sendingu frá Luis Suárez.

Úrugvæinn skoraði svo tvö síðustu mörk leiksins og 7-0 sigur Barcelona staðreynd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×