Lífið

Börnin rennbleyta Victoriu Beckham

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Svokölluð ísfötuáskorun, eða Ice Bucket Challenge, hefur tröllriðið heiminum undanfarna daga. 

Stjörnurnar hafa ekki farið varhluta af áskoruninni en tilgangur hennar er að vekja athygli á ALS-samtökunum og safna áheitum til styrktar félaginu.

ALS stendur fyrir Amyotrophic lateral sclerosis sem betur þekkt hér á landi sem MND-sjúkdómurinn.

Nýjasta stjarnan til að taka þátt í áskoruninni er kryddpían og fatahönnuðurinn Victoria Beckham eins og sést í meðfylgjandi myndbandi.

Hún fékk eiginmann sinn, David Beckham, og syni þeirra Romeo, Cruz og Brooklyn til að hella yfir sig vatni en í myndbandinu virðist Victoria vera afar stressuð.

Hún segist enn fremur skora á Tom Ford, Katie Holmes og son sinn Cruz að taka þátt í áskoruninni.


Tengdar fréttir

Beckham ber að ofan í ísbaði

Kyntröllið David Beckham er sá nýjasti til þess að birta myndband af sér að láta hella yfir sig ísköldu vatni.

Tískuritstjóri bleytir sig

Anna Wintour hefur verið ritstjóri tískutímaritsins Vogue um árabil en hún er þekkt fyrir einstaklega fágaðan stíl.

Cara Delevingne í kaldri sturtu

Ofurfyrirsætan gerir sér lítið fyrir og fær til liðs við sig tvær vinkonur sínar til þess að hella ísköldu vatni á sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×