Yngstu viðskiptavinir Hagkaups geta nú fengið gefins banana á meðan foreldrar eða forráðamenn þeirra kaupa í matinn. Börnunum líður betur í verslunarferðinni og gera má ráð fyrir að sælgætisþörfin minnki segir innkaupastjóri.
Matvöruverslanir hér á landi hafa á síðustu vikum lagt sitt að mörkum til að bæta heilsu landsmanna. Eigendur Víðis fjarlægðu til að mynda sælgætisbarina úr verslunum sínum og ekkert nammi er að sjá þar hjá búðarkössunum. Þá hafa Krónan, Hagkaup, Bónus og Nammibarinn á Laugavegi komið upp ráðleggingum um hæfilega skammta á sælgæti við sína bari. Hagkaup hóf svo fyrir nokkrum dögum að gefa börnum, 9 ára og yngri, banana sem þau geta neytt á meðan þeir fullorðnu versla.
„Hver kannast ekki við að vera með svangt barn inni í búð og þá er upplagt að geta fengið eitthvað hollt og gott," segir Sigríður Gröndal innkaupastjóri Hagkaups og bætir við að viðskiptavinir hafi tekið verkefninu vel.
„Það er vitundarvakning fyrir hollu mataræði og gríðarlega margir sem eru ánægðir með að barnið fái banana á meðan það er inni í búðinni og krökkunum líður þá betur."
Og sækja þá kannski síður í sælgætið? „Já það má alveg reikna með því," segir hún.
Verkefnið stendur yfir í júní og júlí en búist er við að önnur svipuð líti dagsins ljós í Hagkaupsverslunum í sumar.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Fjórir ferðamenn sem komust í sjálfheldu í Fjallsárlóni fyrr í dag munu hafa verið rólegir, enda voru þau með borð og stóla á ísjakanum og gerðu sér ekki grein fyrir hættunni.
Meira
Tún bænda í Svarfaðardal og Skíðadal eru enn hulin snjó og halda þarf öllu lambfé heim við hús. Heyforði er naumur og dæmi eru um að bændur hafi þurft að kaupa hey fyrir tvær milljónir króna það sem a...
Meira
Kostnaður við snjómokstur hjá Dalvíkurbyggð í vetur er þrefalt meiri en í meðalári. Gríðarlegt fannfergi hefur verið á Norðurlandi í allan vetur og eru dæmi um að hús á Dalvík séu enn á kafi í snjó.
Meira
Skipting ráðuneyta er farin að taka á sig mynd í stjórnarmyndunarviðræðum Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks. Sjálfstæðisflokkurinn fær fjármála- og efnahagsráðuneyti og atvinnuvegaráðuneyti í nýrri rík...
Meira
Það er fréttaþulan skelegga á RÚV, María Sigrún Hilmarsdóttir, sem les upp stigin fyrir Íslands hönd þegar allir keppendurnir í Eurovision keppninni hafa lokið við að flytja framlög sín. Alls eru það ...
Meira
Eyþór Ingi Gunnlaugsson, fulltrúi Íslands, söng framlag Íslands í Eurovision, "Ég á líf“ óaðfinnanlega. Hann hlaut mikið lof og klapp í tónlistarhöllinni eftir að hann lauk flutningi sínum. Eyþó...
Meira
Stefnum vegna meiðyrða á netinu hefur fjölgað undanfarin ár segir Hæstaréttarlögmaður og sífellt fleiri leita réttar síns vegna meiðandi ummæla á veraldarvefnum.
Meira
Risavaxin verkefni bíða Bjarna Benediktssonar, sem sagður er verða nýr fjármála- og efnahagsráðherra í nýrri ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks- og Framsóknarflokks.
Meira
5.250 tíst voru send út á fimmtudaginn undir merkinu #12stig, en til stendur að slá íslandsmet í tísti í tengslum við söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva nú í kvöld.
Meira
Rúta og jeppabifreið skullu saman við Grundarfjörð með þeim afleiðingum að flytja þurfti einn eða tvo farþega rútunnar burt með sjúkrabíl. Vettvangur slyssins lítur illa út.
Meira
Eyþór Ingi Gunnlaugsson segist engu kvíða fyrir stóru stundina í kvöld en hann verður númer nítján í röðinni á sviðinu í Malmö í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.
Meira
Kona veittist að lögreglumönnum á lögreglustöðinni í Kópavogi seint í gærkvöldi, en lögreglumenn höfðu skömmu áður haft afskipti af dóttir konunnar vegna umferðarlagabrots.
Meira
Orka sem ekki nýtist í fyrir fram ákveðin verkefni, eins og Straumsvík, verður seld hæstbjóðanda. Ekki er hægt að ráðstafa henni fyrir fram í önnur verkefni. Enn er ósamið um raforkusölu til fyrirhuga...
Meira