Lífið

Börnin fá að sjá Harry Potter

Daniel Radcliffe veltir fyrir sér hvort Harry Potter-myndirnar verði endurgerðar áður en börnin vaxa úr grasi.
Daniel Radcliffe veltir fyrir sér hvort Harry Potter-myndirnar verði endurgerðar áður en börnin vaxa úr grasi.
Daniel Radcliffe segir að það verði skrítið að sýna börnunum sínum Harry Potter-myndirnar, þar sem hann lék aðalhluverkið.

Spurður í spjallþættinum Lorraine hvort myndirnar muni standast tímans tönn sagði hann: „Munu þeir eða munu þeir ekki endurgera þær áður en börnin mín vaxa úr grasi? Munu börnin mín segja: „Var pabbi hinn upphaflegi Harry Potter?““ sagði hinn 25 ára Radcliffe, sem er barnlaus enn sem komið er.

„Þetta gæti alveg gerst. Ég hef hugsað um það á hvaða aldri ég ætti að láta börnin mín sjá þessar myndir vegna þess að þetta er svo skrítið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×