Innlent

Börnin bíða eftir svörum

Kristjana Guðbrandsdóttir skrifar
Fatime, Dennis, Suala, Ajshe og Fejzula ásamt foreldrum sínum  fyrir utan móttökustöðina í Bæjarhrauni. Stúlkurnar Suala og Ajshe bíða óþreyjufullar eftir því að hefja skólagöngu sína.
Fatime, Dennis, Suala, Ajshe og Fejzula ásamt foreldrum sínum fyrir utan móttökustöðina í Bæjarhrauni. Stúlkurnar Suala og Ajshe bíða óþreyjufullar eftir því að hefja skólagöngu sína. Visir/Vilhelm
Systurnar Suala og Ajshe Arslanovska eru tólf og þrettán ára gamlar og eru með stöðu hælisleitenda. Þær eru frá Makedóníu og hafa dvalið á Íslandi í tvo mánuði, lengst af í móttökustöð hælisleitenda í Bæjarhrauni 16 í Hafnarfirði. Þær fá engin svör um það hvenær þær fái að byrja í skóla.

Þær fengu læknisskoðun þann fjórða janúar síðastliðinn og jákvætt svar frá lækni um að óhætt væri að hefja skólagöngu. Hin syst­kini þeirra Dennis fjórtán ára, Fejzula níu ára og Fatime sem er að verða tíu ára gömul hafa dvalið skemur á landinu eða í tæpan mánuð og hafa enn ekki heyrt frá lækni.

Aðeins einn læknir starfar fyrir Útlendingastofnun og bið eftir læknisvottorði getur tafið tímann sem tekur að koma börnum í skóla. Dæmi eru um tveggja mánaða bið eftir læknisvottorði en alla jafna á það að taka um það bil viku.

Umboðsmaður barna hefur ítrekað sent Útlendingastofnun bréf vegna skólagöngu barna sem eru hælisleitendur. Að mati Umboðsmanns barna hefur íslenska ríkið ekki staðið sig nægilega vel í því að tryggja réttindi þessara barna og óviðunandi sé að börn þurfi að bíða í margar vikur eða mánuði eftir skólavist.

Einn af talsmönnum hælisleitenda hjá Rauða krossinum, Gunnar Dofri Ólafsson, tekur undir með Umboðsmanni barna og minnir á skólaskyldu barna á Íslandi. „Það er mjög alvarlegt en því miður alltof algengt að börn í hælisleit komist ekki í skóla þrátt fyrir að hafa gengist undir læknisskoðun.“

Í lok september á síðasta ári var upplýst að Útlendingastofnun hefið látið hjá líðast að sækja um skólavist fyrir börn hælisleitenda þrátt fyrir fjölda áminninga talsmanna hælisleitenda Rauða Krossins og Umboðsmanns barna. Forstjóri stofnunarinnar lofaði þá umbótum.

Útlendingastofnun svaraði fyrirspurn Fréttablaðsins um málefni barnanna á þann veg að staðið hafi til að flytja fjölskylduna úr þjónustu stofnunarinnar í þjónustu sveitarfélags og þess vegna hafi verið talið best að börnin byrjuðu í skóla eftir flutning. Hins vegar hafi það gerst af óviðráðanlegum orsökum að flutningurinn hafi dregist. Reiknað sé með að hann eigi að eiga sér stað í þessari viku.

„Afhendingu á húsnæði til fjölskyldunnar í Reykjanesbæ seinkaði og því gátu þau ekki flutt á þeim tíma sem var fyrirhugaður. Ástæðan fyrir því var sú að í húsnæðinu var fjölskylda sem hafði fengið hæli en lengri tíma tók að finna nýtt húsnæði fyrir þá fjölskyldu en til stóð,“ segir Kristín María Gunnarsdóttir hjá Útlendingastofnun.

Dennis Arslanovski sem er fjórtán ára gamall er ósáttur við seinaganginn og hefur árangurslaust reynt að vekja athygli á málinu. „Það er ekkert hlustað á okkur. Þrátt fyrir að systur mínar hafi fengi jákvætt svar frá lækni þá heyrum við ekkert frá Útlendingastofnun um skólavist þeirra. Bara ekki neitt, en það er mánuður síðan skólinn hófst.“


Tengdar fréttir

Forstjóri Útlendingastofnunar: "Þetta voru mistök hjá okkur“

Samtökin, Barnaheill - save the children á Íslandi, segja engan vafa á því að verið sé að brjóta barnasáttmála sameinuðu þjóðanna með því að veita börnum hælisleitenda ekki skólavist, en á annan tug barna í slíkum aðstæðum eru nú utan skóla hér á landi. Forstjóri Útlendingastofnunar segir stofnunina ekki anna eftirspurn.

Á annan tug barna bíður þess að komast í skóla

Umboðsmaður barna lítur alvarlegum augum á vinnubrögð Útlendingastofnunar, sem hefur látið hjá líða að sækja um skólavist fyrir á annan tug barna hælisleitenda hér á landi.

Albönsku börnin komin í skóla: Mikil gleði fyrsta skóladaginn

Faðir þriggja albanskra barna, sem hingað til hafa ekki fengið skólavist í íslenskum grunnskólum, segir daginn í dag afar ánægjulegan, en í morgun byrjuðu börn hans loksins í skólanum. Yngsti sonur hans segir skemmtilegast að læra stærfræði og leika sér við aðra krakka.

Börn hælisleitenda fá ekki skólavist

Þau Laura fimmtán ára, Janie þrettán ára og Petrit níu ára komu til Íslands í byrjun júní. Þau spyrja foreldra sína daglega hvenær þau fái að fara í skóla. Útlendingastofnun sótti ekki um skólavist fyrir systkinin þrátt fyrir ítrekaðar áminningar foreldra barnanna, lögfræðinga og umboðsmanns barna.

Tólf ekki enn í skóla

Útlendingastofnun óskaði ekki eftir þjónustu frá Hafnarfirði vegna hælisleitenda í nýrri móttökustöð í Bæjarhrauni þar til í síðustu viku. Nánar tiltekið 1. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×