Innlent

Börn úr bænum fyrir Fortitude

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Vilja mannalausan Seyðifjörð á mánudag.
Vilja mannalausan Seyðifjörð á mánudag. Fréttablaðið/GVA
"Í þættinum á bærinn á að virðast mannlaus og getum við því ekki verið á ferðinni á skólalóðinni," segir í tilkynningu skólastjóra Seyðisfjarðarskóla.

Þar á að ferja öll börn á mánudagsmorgun í tveimur rútum yfir í Brúaráskóla á Héraði þar sem þau munu eyða deginu með jafnöldrum sínum á meðan lið frá BBC tekur upp atriði í sjónvarpsþættinum Fortitude.

Rúturnar eiga að snúa til baka með börnin klukkan þrjú. "Við munum setja krakkana úr rútunni á Kaupfélagsplaninu, þar sem tökur verða líklega enn í gangi þegar við komum klukkan þrjú. Því eru foreldrar beðnir að sækja yngstu börnin þangað. Við vonum að þið sýnið þessu skilning," segir skólastjórinn. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×