Innlent

Börn slösuðust í strætó þegar bílstjóri bremsaði harkalega

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Þegar Vísir hafði samband við Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóra Strætó, vildi hann ekki tjá sig um málið að öðru leyti en því að hann hafði heyrt af því og það væri til skoðunar innanhúss hjá fyrirtækinu.
Þegar Vísir hafði samband við Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóra Strætó, vildi hann ekki tjá sig um málið að öðru leyti en því að hann hafði heyrt af því og það væri til skoðunar innanhúss hjá fyrirtækinu. vísir/ernir
„Lenti í allsvakalegu atviki nú rétt í þessu. Ég var sem sagt á leið heim í strætó, leið 18. Leiðin liggur um Grafarholt og þar stoppar vagninn við Sæmundarskóla. Inn koma 12-15 börn á ýmsum aldri. Vagninn ekur svo af stað og eftir nokkra stund þá hreinlega neglir bílstjórinn bremsunum niður þannig að vagninn stoppar mjög harkalega. Mörg af börnunum flugu úr sætum sínum niður á gólf með tilheyrandi ópum. Ég náði einhvern veginn að halda mér að mestu í sætinu.“

Svona hefst Facebook-færsla Auðuns Sólbergs Valssonar en þar lýsir hann atviki sem hann varð vitni að í strætó um klukkan tvö í dag. Í samtali við Vísi segir Auðunn að hann hafi verið eini fullorðni einstaklingurinn í strætónum þegar þetta gerðist.

Lenti með andlitið á stöng

„Það voru þarna þrjár stelpur sem voru ekki alveg sestar og voru komnar svona um miðjan vagn þegar bílstjórinn bremsar harkalega þannig að þær detta á gólfið í einni kös og sú sem lendir undir fer með andlitið í stöng sem var þarna,“ segir Auðunn en um miðjan vagninn er svæði til fyrir hjólastóla og barnavagna.

Hann segist hafa farið og hjálpað stelpunni á fætur en farið síðan að ræða við bílstjórann.

„Ég spurði hann hvað væri eiginlega að ske. Þarna væru krakkar og þau væru ekki í belti en bílstjórinn svaraði því til að hann hefði séð í baksýnisspeglinum að einhver opnaði kókdós í vagninum. Ég sagði honum þá að það væru einhver barnanna meidd og bað hann að stoppa en hann vildi það ekki heldur ók bara af stað og var kominn á fleygiferð innan skamms,“ segir Auðunn.

Auðunn Sólberg Valsson
Hann hafi því farið aftur í vagninn þar sem sex ára strákur bað um að fá að setjast hjá honum þar sem hann væri orðinn hræddur og honum væri illt í löppinni.

„Ég sagði honum að hringja í foreldra sína og láta þau vita af þessu. Ég sá síðan að stelpan reyndi að setja húfuna yfir andlitið á sér en hún var öll orðin marin og blá. Ég fór þá aftur til bílstjórans og sagði honum að hann yrði að stoppa en ég skildi ekki alveg hverju hann svaraði. Ég spurði hann þá hvort honum væri alveg sama að þarna væru krakkar sem væru slasaðir en hann svaraði mér ekki.“

Málið til skoðunar hjá Strætó

Auðunn kveðst síðan hafa farið út skammt frá heimili sínu í Úlfarsárdal eftir að hafa gengið úr skugga um að þau börn sem höfðu meitt sig hefðu náð sambandi við foreldra sína. Hann hafi síðan hringt í 112, gefið stutta skýrslu um málið í síma og svo fengið samband við lögregluna. Aðspurður segist hann ekki hafa heyrt neitt frá Strætó vegna málsins en hann hefur skiljanlega áhyggjur af börnunum.

„Maður veit ekki hversu mikið þau voru meidd, eins og þessi stelpa. Mig langar bara að vita hvort hún er mikið meidd og hvort einhver kannist við málið,“ segir Auðunn.

Þegar Vísir hafði samband við Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóra Strætó, vildi hann ekki tjá sig um málið að öðru leyti en því að hann hafði heyrt af því og það væri til skoðunar innanhúss hjá fyrirtækinu.

Lenti í all svakanlegu atviki nú rétt í þessu. Ég var sem sagt á leið heim í strætó, leið 18. Leiðin liggur um...

Posted by Auðunn Sólberg Valsson on Monday, 22 February 2016

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×