Glamour

Börn ritstjóra Vogue trúlofuð

Ritstjórn skrifar
Anna Wintour, lengst til vinstri, og Franca Sozzani og Francesco Carrozzini sem er lengst til hægri.
Anna Wintour, lengst til vinstri, og Franca Sozzani og Francesco Carrozzini sem er lengst til hægri. Mynd/Getty
Skemmtilegar fréttir bárust frá Vogue fjölskyldunni í dag þegar Bee Shaffer, dóttir Anna Wintour, trúlofaðist Francesvo Carrozzini, syni Franca Sozzani. Svo skemmtilega vill til að mæður þeirra beggja hafa verið ritstjórar Vogue. 

Anna Wintour er núverandi ritstjóri bandaríska Vogue en Franca Sozzani var ritstjóri ítalska Vogue þangað til hún lést í desember á seinasta ári. Það var talsmaður á vegum Vogue sem staðfesti fregnirnar. Hvorugt þeirra starfar við tísku en þau byrjuðu saman í október á seinasta ári. Hægt er að gera ráð fyrir að þau hafi þekkst í fjölmörg ár. 

Ritstjórabörnin trúlofuð.





×