Erlent

Börn einn þriðji þeirra flóttamanna sem reyna að komast sjóleiðina til Evrópu

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Af þeim 272 sem drukknuðu á sjóleiðinni milli Tyrklands og Grikklands í janúar voru 60 börn, en á seinustu fimm mánuðum, að janúar meðtöldum hafa 330 börn drukknað á þessu svæði.
Af þeim 272 sem drukknuðu á sjóleiðinni milli Tyrklands og Grikklands í janúar voru 60 börn, en á seinustu fimm mánuðum, að janúar meðtöldum hafa 330 börn drukknað á þessu svæði. vísir/epa
Konur og börn eru nú í fyrsta skipti í meirihluta þeirra flóttamanna sem reyna að komast frá Grikklandi til Makedóníu, en hingað til hafa fullorðnir karlmenn verið flestir þeirra sem flúið hafa til Evrópu vegna stríðsátaka, aðallega í Sýrlandi.

Fjallað er um málið á vef Guardian og er þar vitnað í nýjar tölur frá UNICEF, barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Í þeim kemur fram að einn þriðji þeirra sem nú flýja sjóleiðina frá Tyrklandi til Grikklands eru börn en ekkert lát er á straumi flóttamanna til Evrópu þrátt fyrir að nú sé hávetur.

Fjöldi fólks hættir þannig lífi sínu til að komast til Evrópu en greint var frá því í gær að níu manns, þar af tvö börn, hafi fundist látin á vesturströnd Tyrklands en þau drukknuðu eftir að bátnum, sem þau ætluðu á til Grikklands, hvolfdi.

Í júní í fyrra voru 73 prósent þeirra flóttamanna sem komu til Evrópu fullorðnir karlmenn og aðeins 10 prósent voru yngri en 10 ára. Því er breytingin nú mikil þegar mun fleiri konur og börn leggja í þetta hættulega ferðalag.

Af þeim 272 sem drukknuðu á sjóleiðinni milli Tyrklands og Grikklands í janúar voru 60 börn, en á seinustu fimm mánuðum, að janúar meðtöldum hafa 330 börn drukknað á þessu svæði. Á seinasta ári drukknuðu alls 4000 flóttamenn þegar þeir reyndu að komast sjóleiðina til Evrópu.


Tengdar fréttir

Vilja að Grikkir sendi flóttafólk aftur til Tyrklands

Samkvæmt hugmyndum Hollendinga ætti Evrópusambandið að taka við 150 til 250 þúsund flóttamönnum á ári. Svíar segjast ætla að senda 60 til 80 þúsund flóttamenn til baka á næstu árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×