Viðskipti innlent

Borgun: Ekki rétt að stóraukin umsvif utanlands tengist vafasömum viðskiptum sem aðrir vilji ekki sinna

Atli Ísleifsson skrifar
Málið varðar lög um eftirlit með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
Málið varðar lög um eftirlit með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka. Vísir/Ernir
Borgun segir að ranglega hafi verið full­yrt að stóraukin um­svif Borgunar utanlands tengist vafasömum viðskiptum sem önnur kortafyrirtæki vilji ekki sinna.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í yfirlýsingu frá fyrirtækinu, en greint hefur verið frá að Fjármálaeftirlitið hafi vísað máli tengdu Borgun til héraðssaksóknara í tengslum við athugun og síðar athugasemdir við verklag og eftirlit vegna áreiðanleikakannana á erlendum viðskiptavinum.

Fjármálaeftirlitið sendi á föstudag frá sér tilkynningu um niðurstöðu athugunar á eftirliti með peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hjá Borgun. Í tilkynningu FME frá því á föstudag segir að stofnunin hafi í kjölfarið farið fram á að Borgun myndi slíta viðskiptasambandi við fyrirtæki sem hefðu ekki verið könnuð.

Telur sig hafa framkvæmt áreiðanleikakannir samkvæmt verklagshefð

„Borgun telur sig hafa framkvæmt áreiðanleikakannir á viðskiptavinum samkvæmt verklagshefð á Evrópska efnahagssvæðinu þegar sambærileg viðskipti eru annars vegar. FME hefur hins vegar gert athugasemdir við hvernig gagna hefur verið aflað og hvernig áreiðanleiki þeirra hefur verið tryggður. Borgun  tekur athugasemdum FME alvarlega eins og fram kom í yfirlýsingu Borgunar sl. föstudag. Fyrirtækið mun tryggja í samstarfi við FME að starfsemin fullnægi ítrustu skilyrðum laga m.t.t. könnunar á áreiðanleika viðskiptamanna og skyldum þáttum.

Unnið er að innleiðingu þeirra ráðstafana, sem Borgun þarf að grípa til, og stefnt er að því að allri vinnu af hálfu Borgunar til að uppfylla kröfur FME um úrbætur verði lokið innan tveggja mánaða. Rangt er að Borgun hafi ekki framfylgt fyrirmælum FME. Borgun hefur þegar sagt upp öllum viðskiptum sem FME gerði kröfu um að yrði sagt upp.

Ranglega hefur verið full­yrt að stóraukin um­svif Borgunar utanlands tengist vafasömum viðskiptum sem önnur kortafyrirtæki vilji ekki sinna.

Borgun hefur starfað á alþjóðlegum greiðslumiðlunarmarkaði frá því um árið 2000. Viðskiptin hafa vaxið jafnt og þétt á síðustu árum. Fyr­ir utan hefðbundna smásöluverslun þá vegur eng­inn ein­stak­ur viðskipta­flokk­ur meira en um það bil 2% af heild­ar­viðskipt­um Borg­un­ar. Áhætt­an af viðskipta­flokk­um er mis­mik­il og af mismunandi ástæðum, svo sem endurkröfuáhætta, orðsporsáhætta og uppgjörsáhætta. Borgun uppfyllir öll skilyrði alþjóðlegu kortafélaganna í starfsemi sinni.

Á und­an­förn­um árum hef­ur Borg­un lagt megin áherslu utan Íslands á al­menna smá­sölu­versl­un í Ungverjalandi, Tékklandi og Bretlandi, auk sér­hæfðrar greiðslumiðlun­ar svo sem sjálfsala og fleira. Borg­un þjón­ar nú þúsundum viðskiptavina á þess­um svæðum og u.þ.b. 25 þúsund sjálf­sö­lum í Evrópu,“ segir í yfirlýsingunni.


Tengdar fréttir

Borgun sinnti ekki tilmælum FME um að slíta samningum við "vafasöm“ fyrirtæki

Áður en Fjármálaeftirlitið kærði Borgun hf. til héraðssaksóknara vegna máls sem varðar eftirlit með peningaþvætti hafði eftirlitið beint þeim tilmælum til Borgunar að slíta sambandi við viðskiptavini sem höfðu ekki verið kannaðir með tilliti til áreiðanleika. Borgun sinnti ekki þessum kröfum FME og því var málinu vísað til saksóknara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×