Lífið

Borguðu milljarð fyrir fimm hundruð fermetra hús

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Rande og Cindy gera það gott.
Rande og Cindy gera það gott. Vísir / Samsett mynd
Ofurfyrirsætan Cindy Crawford og eiginmaður hennar, frumkvöðullinn Rande Gerber, festu nýverið kaup á fimm hundruð fermetra húsi í Trousdale-hverfinu í Beverly Hills í Kaliforníu. Fyrir húsið greiddu þau tæplega tólf milljónir dollara, eða um milljarð króna. 

Húsið keyptu þau af Ryan Tedder í hljómsveitinni OneRepublic, en hann hefur einnig skrifað lög og pródúserað tónlist fyrir listamenn á borð við Madonnu, U2, Adele og Beyoncé. 

Fallegt hús.
Húsið er búið fimm svefnherbergjum og eru gluggar og gólfefni ný. Þá fylgir húsinu einnig sundlaug og herbergi sem ætlað er fyrir húshjálpina.

Nútímaleg hönnun.
Cindy og Rande eru búin að vera með hús sitt í Malibu í Kaliforníu á sölu síðan 2016. Líklegast er það vanmat að kalla þá eign hús og á orðið glæsihýsi frekar við. Ásett verð eru sextíu milljónir dollara, rúmir sex milljarðar króna, en eignina keyptu hjónin árið 2015 fyrir 50,5 milljónir dollara, rúma fimm milljarða króna.

Hér er hægt að snyrta sig.
Huggulegt.
Svefnherbergin eru hver öðru glæsilegra.
Glæsileg hjón.Vísir / Getty Images

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×