Lífið

Borgríki rýfur tíu þúsund gesta múrinn

Íslenskir kvikmyndahúsagestir hafa tekið spennumyndinni Borgríki opnum örmum. Myndin var frumsýnd fyrir tveimur vikum síðan og hefur haldið góðri aðsókn frá frumsýningu. Nú í vikunni rauf hún tíu þúsund gesta múrinn og ekkert lát virðist á aðsókninni.

Aðstandendur Borgríkis eru vitanlega í skýjunum með þessar góðu viðtökur kvikmyndahúsagesta og gagnrýnenda. Með fréttinni fylgir glænýtt sýnishorn úr myndinni sem er frumsýnt hér á Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×