Innlent

Borgin gerir starfslokasamning við skólastjóra Melaskóla

Heimir Már Pétursson skrifar
Skólastjóri Melaskóla lét af störfum í dag vegna óvæginnar umræðu í hennar garð eins og segir í yfirlýsingu hennar og hefur Reykjavíkurborg gert við hana starfslokasamning. Hún segist bera hag barnanna í skólanum fyrir brjósti og kjósi því að láta af störfum.

Ófremdarástand hefur verið í Melaskóla undanfarnar vikur og mánuði. Hópur kennara hefur sett fram ásakanir á hendur skólastjóranum um að hann væri vanhæfur í starfi . Án þess þó að nefna nokkur dæmi þar um.

Skólaráð Melaskóla kom saman til fjölmenns fundar foreldra og starfsmanna klukkan fimm í dag, þar sem sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar las stutta yfirlýsingu frá skólastjóranum. Hún á 18 ára feril að baki sem skólastjórnandi en hóf störf í Melaskóla haustið 2013 og hefur nú gert starfslokasamning við borgina.

„og það er í ljósi þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað núna undanfarið sem hefur verið frekar óvæg í minn garð. Ástæðan er kannski fyrst og fremst að ég er að hugsa um hagsmuni barnanna í Melaskóla. Mér er annt um börnin í Melaskóla og mér er annt um skólasamfélagið í Melaskóla og tel að það þurfi að ríkja friður um skólastarfið,“ segir Dagný. Öll börn eigi það skilið.

Mjög óræðar ásakanir í garð skólastjórans hafa birst í fjölmiðlum undanfarnar vikur án þess að skólastjórinn svaraði fyrir sig opinberlega fyrr en nú.

Hvers vegna ekki?

„Ég er þá fyrst og fremst alltaf að hugsa um hagsmuni barnanna og reyna að lágmarka þann skaða sem hefur gerst innan veggja skólans. Ég hugsa óskaplega hlýtt og falega til Melaskóla,“ segir skólastjórinn fráfarandi.

Hún voni að nú skapist friður um skólastarfið en auðvitað hafi þetta reynst henni erfitt.

„En ég er sátt í ljósi þeirra aðstæðna sem að eru og mun geta gengið frá borði með reisn. Ég hef ekki brotið af mér í starfi og ég hef ekki hlotið áminningu,“ segir Dagný.

Helgi Grímsson sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar vonar eins og Dagný að nú skapist friður í skólanum

„Við erum í raun og veru ekki að horfa á sök. Við vitum að þetta er skólasamfélag bæði í starfsmannahópnum og foreldrahópnum þar sem er ágreiningur og togstreita. En enn og aftur; ef menn hafa hag barnanna að leiðarljósi og gott skólastarf þá náum við áfram með það,“ segir Helgi.


Tengdar fréttir

Gagnrýna einhliða og grimma umræðu

Kennarar við Melaskóla segja framgang samkennara undarlegan og vegið að mannorði skólastjórans. Formaður Skólastjórafélags Reykjavíkur segir umræðuna forkastanlega. Síðustu ár hafi niðurskurður og nýir kjarasamningar verið óvinsæl v

Kennarauppreisn í Melaskóla

30 kennarar hóta að hætta ef Dagný Annasdóttir tekur aftur við sem skólastjóri Melaskóla.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×