Innlent

Borgin býður upp á sand og salt

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Hálkuvarnir fást á hverfastöðvum eins ig þessari á Klambratúni.
Hálkuvarnir fást á hverfastöðvum eins ig þessari á Klambratúni. Fréttablaðið/Anton
„Eins og undanfarin ár eiga íbúar þess kost að sækja sér salt og sand á hverfastöðvar og verkbækistöðvar Reykjavíkurborgar til að bæta öryggi á gönguleiðum,“ segir á vef borgarinnar.

Salt og sandur er á hverfastöðvum við Njarðargötu, í Jafnaseli og á Kjalarnesi og í verkbækistöðvunum við Árbæjarblett og á Klambratúni. Fólk er hvatt til að hafa með sér ílát. Á staðnum eru líka pokar og séð er fyrir skóflum.



Salt og sandur er aðgengilegur fyrir íbúa á eftirfarandi stöðum:

  • Hverfastöðinni við Njarðargötu,      
  • Hverfastöðinni í Jafnaseli,
  • Hverfastöðinni á Kjalarnesi,
  • Verkbækistöðinni við Árbæjarblett og 
  • Verkbækistöðinni á Klambratúni við Flókagötu.
Hverfastöðvarnar eru opnar mánudaga til fimmtudaga kl. 7:30 - 17:00 og föstudaga kl. 7:30 -15:25, en verkbækistöðvarnar eru opnar kl. 7:30 - 17:25 mánudaga til miðvikudaga og kl. 7:30 - 15:25 á fimmtudögum og föstudögum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×