Borgin ætti ekki að mismuna börnum

Fréttablaðið Innlent 09. september 2010 03:15
Borgin greiðir ekki niður mat til foreldra barna í Ísaksskóla og Landakotsskóla. fréttablaðið/heiða
Borgin greiðir ekki niður mat til foreldra barna í Ísaksskóla og Landakotsskóla. fréttablaðið/heiða
Reykjavíkurborg niðurgreiðir ekki mat í einkaskólunum Ísaksskóla og Landakotsskóla. Foreldrar barna í þessum skólum borga því 11.700 krónur á mánuði fyrir fæði barna sinna, í stað þeirra 5.000 króna sem greiða þarf í skólum sem borgin rekur.

Sölvi Sveinsson, skólastjóri Landakotsskóla, segir að skólinn muni leita eftir því að Reykjavíkurborg greiði niður mat fyrir nemendur skólans eins og önnur börn í Reykjavík.

„Það ætti ekki að skipta máli hvort þau séu í Ísaksskóla og Landakotsskóla eða Hagaskóla og Melaskóla," segir Sölvi. „Ég hefði haldið að það yrði að minnsta kosti 150 krónum ódýrara á dag, ef ekki meira, ef borgin kæmi til móts við foreldra."

Sölvi segir börn og foreldra almennt vera mjög ánægð með matinn í skólanum og mælist til þess að fleiri skólar nýti sér svipaða þjónustu.
„Það sem skiptir mestu máli er að krakkarnir séu ánægðir með matinn og hann sé góður fyrir þá," segir hann.

Erna Sverrisdóttir hjá Happi, sem sér um matinn í Ísaksskóla og Landakotsskóla, segir fyrirtækið hafa þá stefnu að bæta heilsu Íslendinga og auðvitað liggi beinast við að byrja á æsku landsins. Hún segir að hollum matarvenjum og góðum siðum eigi að gera hátt undir höfði í grunnskólum.

„Þetta er mikilvægt uppeldisatriði. Við þurfum að hlúa betur að matarvenjum okkar. Við gerðum tilraun með Happ-mat í rétt rúman mánuð í Landakotsskóla og það tókst gífurlega vel," segir Erna. „Hlutfall grænmetis og hollra kolvetna er miklu hærra hjá okkur en í öðrum skólaeldhúsum. Á flestum stöðum eru aðeins 9 prósent matarins sem þar er á borð borinn grænmeti og ávextir sem er langt undir ráðlögðu mataræði Lýðheilsustöðvar."

Verð á matarskammti fyrir börnin fer eftir fjölda þeirra, bæði í Ísaksskóla og Landakotsskóla. Happ er í samningaviðræðum við þriðja skólann.
„Við teljum að maturinn hjá okkur sé ekki dýrari en í mötuneytum hjá Reykjavíkurborg, miðað við þá niðurgreiðslu sem á sér stað þar," segir Erna.

sunna@frettabladid.is

Fleiri fréttir - Innlent

Innlent 13. feb. 2012 06:30

Minnihluti fylgjandi Vaðlaheiðargöngum

Um 28 prósent landsmanna vilja að ráðist verði í gerð Vaðlaheiðarganga í ríkistryggðri ein...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 06:00

Rammaáætlun felur ekki í sér endanlega úthlutun

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra segir ekki rétt að halda því fram að í rammaáætlun...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 06:00

Tæplega 44 prósent vilja falla frá ákæru

Þjóðin er klofin í tvær jafnar fylkingar í afstöðu sinni til þess hvort Alþingi eigi að dr...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 05:00

Minna ofbeldi í miðborginni

Alls urðu 1.578 fyrirtæki gjaldþrota á árinu 2011 og hafa aldrei verið fleiri á einu ári. ...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 05:00

Taldi sig eiga óuppgerð mál

Karlmaðurinn sem varð fyrir hrottalegri árás á heimili sínu á Þórshöfn aðfaranótt sunnudag...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 04:00

Tilgangurinn var ekki að valda skaða

Karl á áttræðisaldri hefur játað að hafa komið fyrir sprengjunni sem sprakk á Hverfisgötu,...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 04:00

Vilja skýr svör um bótaskyldu

Þrír bændur telja að Ísafjarðarbær beri ábyrgð á því tjóni sem þeir urðu fyrir af völdum d...  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 03:13

Sammála um annað en ESB

Stofnfundur nýrrar breiðfylkingar um framboð til næstu alþingiskosninga var haldinn í gær....  

Meira
Innlent 13. feb. 2012 03:13

Vill alhliða lög gegn mismunun

Ísland þarf alhliða lög gegn mismunun og óháða jafnréttisnefnd til þess að hrinda ákvæðum ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 20:15

Fyrri stofnfundur Breiðfylkingarinnar haldinn í dag

Í dag var haldinn stofnfundur Breiðfylkingarinnar sem fulltrúar Hreyfingarinnar, Frjálslyn...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 19:45

Rúmur meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram

Rúmur meirihluti þjóðarinnar vill að Ólafur Ragnar Grímsson gefi aftur kost á sér í forset...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 18:46

Flestir vildu að Blár Ópal myndi vinna: "Leiðinlegt fyrir sigurlagið“

"Það er skrýtið að þetta hafi ekki verið skýrara,“ segir Ingólfur Þórarinsson, eða I...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 17:26

Hundur fastur í neti - tækjabíll frá slökkviliðinu kallaður til

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um hund sem væri fastur í netadræsum við Ægisg...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 13:51

Tæplega 80 þúsund atkvæði greidd í Eurovison

Alls voru greidd 79 þúsund atkvæði í Eurovision keppninni sem var sýnd á RÚV í gærkvöldi. ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:53

Beit lögregluþjón

Karlmaður beit lögregluþjón til blóðs í morgun. Maðurinn var stöðaður á Laugaveginum rétt ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:45

Huglausa ljónið féll niður hlera í miðri sýningu

"Samkvæmt öllum myndum og rannsóknum ætti hann að sleppa ótrúlega vel,“ segir leikar...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 10:19

Opið í Böggvistaðafjalli og í Oddsskarði

Lokað er í Bláfjöllum í dag vegna veðurs en þar er bæði hvasst og Blautt. Sömu sögu er að ...  

Meira
Innlent 12. feb. 2012 09:32

Settist upp í lögreglubíl og braut bílrúðu

Ölvaður og æstur maður var handtekinn við krá í Hafnarfirði eftir að hann braut rúðu í lög...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Innlent / Borgin ætti ekki að mismuna börnum