Innlent

Borgarstjóri Osló: "Viljum ekki að hefðin leggist af“

Bjarki Ármannsson skrifar
Fabian Stang segir Oslóarbúa ekki vilja að hefðin leggist af.
Fabian Stang segir Oslóarbúa ekki vilja að hefðin leggist af. Vísir/Valli/AFP
Oslóarborg vill ekki að hefðin í kringum „Oslóartréð“ leggist af og hefur lagt til að grenitré verði fellt á Íslandi þetta árið. Það sé bæði umhverfisvænna og betra fyrir tréð sjálft.

Þetta kemur fram í bréfi frá Fabian Stang, borgarstjóra Osló, sem Morgunblaðið birti í dag. Í bréfinu segist Stang hafa skrifað Jóni Gnarr borgarstjóra um hvernig sé best að viðhalda og betrumbæta þá hefð að Osló færi Reykjavík jólatré að gjöf.

Norska fréttasíðan Osloby.no greindi frá því í vikunni að Oslóarborg íhugaði nú að gefa ekki jólatré til Reykjavíkur og Rotterdam líkt og hefð hefur skapast fyrir. Bent var á í fregninni að flutningur trésins væri bæði dýr og flókinn.

„Við vorum bara að heyra af þessu og þurfum tíma til að fara yfir málin,“ sagði S. Björn Blöndal, aðstoðarmaður borgarstjóra í kjölfar fregnanna. „Við ætlum að heyra í frændum okkar og vinum í Noregi,“ sagði Björn.  

Í bréfi Stang vekur hann athygli á því að þegar Oslóbúar tóku fyrst að gefa Reykvíkingum grenitré á jólunum, fyrir rúmum sextíu árum, var það ekki síst vegna þess að jólatré af þessari stærð voru vandfundin í og í kringum Reykjavík.

„En núna vaxa grenitré á Íslandi og þegar breytingar verða á eina sviði getur verið viturlegt að athuga hvort breyta megi til batnaðar á öðrum sviðum líka,“ segir Stang.

Hann segist einnig hafa boðið Jón Gnarr að athuga hvort fella megi tréð á Íslandi, jafnvel í skógi sem plantað hefur verið í samvinnu við Noreg. 

„Það er umhverfisvænna en að flytja það um langan veg og grenitré geta orðið fyrir skaða við langa flutninga yfir hafið.“

Stang ítrekar jafnframt í bréfi sínu að hann vilji gjarnan þróa áfram samvinnu og vinskap milli Reykjavíkur og Osló. 


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×