Innlent

Borgarstjóri og forsætisráðherra deila um ágæti Hafnartorgs

Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar
Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráðherra tel­ur að end­ur­hugsa þurfi frá grunni fyr­ir­hugaða upp­bygg­ingu á svo­nefndu Hafn­ar­torgi, norðan við Lækj­ar­torg í hjarta Reykja­vík­ur. Verði af fyrirhuguðum áformum á Hafnartorgi yrði það gríðarlegt skipulagsslys.

Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Sigmundur Davíð segir að ef þarna verði byggt með þeim hætti sem dregið hefur verið upp á myndum af byggingunni yrði það líklega seinna álitið eitt mesta skipulagsslys í miðbæ Reykjavíkur í seinni tíð og jafnvel alla tíð.

Kallast á við sögu svæðisins

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir svæðið hannað með tilliti til sögunnar og þeirra bygginga sem voru þar fyrir.

„Þarna er verið að breyta malbikuðu bílastæði í lifandi verslunargötur,“ segir Dagur. „Stór og mikil hús, sem áður áttu að vera fá og há, er búið að brjóta upp í sjö minni einingar. Einmitt til þess að þetta verði eins lifandi og skemmtilegt og hægt er. Ástæðan fyrir því að hönnunin hefur tekið svona langan tíma er einmitt sú að hönnuðurnir og framkvæmdaaðilar hafa viljað kallast á við söguna, minna á pakkhúsin og þar fram eftir götunum.“

Forsætisráðherra telur að gert sé ráð fyrir of miklu byggingarmagni á reit sem ekki sé ýkja stór og að fráleitt sé að reisa stórgerðar tískubyggingar í gömlu Kvosinni og skemma þar með það litla sem til sé af sögulegum miðbæ.

„Forsætisráðuneytið kemur að minjaþættinum og það var auðvitað mjög rausnarlegt framlag frá forsætisráðuneytinu og Minjastofnun nú á dögunum þegar þau ákváðu að friða hafnargarðinn og kosta flutning á honum og enduruppsetningu í verkefninu,“ segir Dagur. „Það bætir í raun verkefnið og tryggir að það kallist enn frekar á við sögu hafnarinnar og þetta svæði.“

Dagur bendir jafnframt á að Sigmundur Davíð hafi sjálfur verið varaformaður skipulagsráðs sem tók þátt í að auglýsa þetta skipulag án þess að gera neinar róttækar breytingar á þeim áformum sem nú eru að verða að veruleika.

„Þannig að það hafa mjög margir komið að þessu og allir verið þeirrar skoðunar að tengja Hörpu betur við miðborgina, það væri mjög jákvætt að fá þangað lifandi göngugötur, fjölbreyttar verslanir og íbúðir. Þetta verður auðvitað svolítið ný vídd og viðbót við miðborgina eins og við þekkjum hana í dag.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×