Innlent

Borgarstjóri kynnir lausnir fyrir heilbrigðisráðherra

Benedikt Bóas skrifar
Fráflæðisvandi LSH er mikill. Kostnaður, beinn og óbeinn, vegna hans er 4,5 milljarðar á ári.
Fráflæðisvandi LSH er mikill. Kostnaður, beinn og óbeinn, vegna hans er 4,5 milljarðar á ári. vísir/vilhelm
Brýnt er að fara tafarlaust í frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma í Reykjavík til að mæta brýnni þörf og framtíðarþörf. Þetta kemur fram í bréfi sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sendi Óttari Proppé heilbrigðisráðherra í byrjun mars. Dagur segir borgina hafa lóðir til reiðu fyrir byggingu hjúkrunarheimila og fyrir viðbyggingarmöguleika. Dagur leggur til að settur verði á fót sameiginlegur starfshópur til að meta þróun og þjónustuþyngd til framtíðar og hvernig hægt sé að bregðast við.

Dagur segir að ekki hafi verið opnuð ný hjúkrunarrými í borginni síðan 2010 þegar Mörkin tók til starfa. Þó sé búið að samþykkja byggingu 105 rýma hjúkrunarheimilis við Sléttuveg sem ráðgert er að opna árið 2019. Kostnaður, beinn og óbeinn, vegna fráflæðisvanda LSH sé 4,5 milljarðar á ári miðað við árið 2015.

Dagur B. Eggertssonvísir/ernir
Sé kostnaður við að hafa sjúklinga inniliggjandi á deildum LSH í bið eftir hjúkrunarrými dreginn frá kostnaði við að hafa þessa sömu sjúklinga á hjúkrunarheimili fáist samfélagskostnaður upp á 3,4 milljarða. Vitnar Dagur í tölur frá Hagfræðideild HÍ.

„Í núverandi stöðu er brýn þörf fyrir hendi og samfélagslegur kostnaður vegna fráflæðisvanda LHS er mikill. Ákvarðanir um næstu skref og uppbyggingu úrræða geta ekki beðið að mati borgarinnar,“ segir í bréfinu. Hægt væri að nýta þessa 3,4 milljarða betur og leggur Dagur til þrjár hugmyndir. Sú fyrsta er uppbygging hjúkrunarheimila. Lóð sé tilbúin norðan við Borgarholtsskóla og hefur Hjúkrunarheimilið Eir/Skjól lýst yfir áhuga á að reka það með 120-150 rýmum. Viðbótarrými og ný rými við Sóltún gætu verið alls 107. Þá sé Skógarbær reiðbúinn að fjölga rýmum um 30-40. Þessi 280 rými myndu kosta 2,4 milljarða á ári.

Óttar Proppé, heilbrigðisráðherra.vísir/ernir
Þá bendir Dagur á sérhæfða þjónustu við aldraða í heimahúsi, 80 ára og eldri. Kostnaðurinn er metinn 8,5 milljónir á einstakling en dvöl á hjúkrunarheimili kostar 9,9 milljónir og er ekki byggingarkostnaður eða leiga inni í tölunum.

Að síðustu bendir Dagur á að framlag til heimahjúkrunar hafi staðið í stað síðan borgin tók við henni árið 2009. Í bréfinu bendir Dagur á að samkvæmt greiningu efnahagssviðs SA hafi Norðurlöndin síðustu ár lagt aukna áherslu á að færa öldrunarþjónustu og aðra langtímaumönnun yfir í minna fjárfrek úrræði eins og heimahjúkrun. Ísland sé ekki að taka þátt í þeirri þróun. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×