Innlent

Borgar árlega hundrað milljónir fyrir leigubíla

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Landspítalinn við Hringbraut.
Landspítalinn við Hringbraut. vísir/vilhelm
Kostnaður Landspítalans vegna leigubíla fyrir starfsfólk nam 94,9 milljónum króna á síðasta ári. Hann var 90,9 milljónir árið áður og 108,4 milljónir árið 2014.

Samkvæmt upplýsingum frá spítalanum er aðallega skipt við leigubílastöðina Hreyfil en í gangi er samningur um viðskiptakort milli fyrirtækisins og Landspítala. Einnig er skipt við A-stöðina, Bifreiðastöð Oddeyrar og BSR. Sé kostnaður vegna bílaleigubíla tekinn með var heildarkostnaðurinn 100,8 milljónir í fyrra, 95,6 milljónir árið 2015 og 111,8 milljónir árið 2014.

María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá Landspítalanum, segir að kostnaðurinn skýrist aðallega af því hve víða starfsemi Landspítalans fer fram. „Við erum með okkar starfsemi á sautján stöðum í meira en 100 byggingum. Það er verið að þjóna sjúklingum á flestum af þessum stöðum og það er sama starfsfólkið sem er að þjóna sjúklingum á mismunandi stöðum. Það leiðir til þess að okkar fólk þarf mikið að fara á milli,“ segir María. Þetta leiði bæði til beins kostnaðar fyrir spítalann en líka óbeins kostnaðar þar sem vinnutíma starfsfólks sé illa varið í leigubíl.

María Heimisdóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá LandspítalanumMynd/LSH
Hluti kostnaðar fellur til vegna þess að starfsfólk þarf að komast til eða frá vinnu á tímum þar sem strætisvagnar eru ekki á ferð. Þá eiga starfsmenn rétt á að nota leigubíla á kostnað spítalans. María segir þetta þó skýra aðeins lítinn hluta heildarkostnaðarins. Vaktaskipti séu yfirleitt þegar strætó gengur. „Þegar það er ekki þá reynum við að skipuleggja þetta sérstaklega þannig að sami leigubíllinn taki fleiri en einn starfsmann, ef þess er kostur.“

Landspítalinn nýtir sér ekki bara þjónustu leigubíla og bílaleiga því spítalinn á sjálfur nokkra bíla. Meðal annars á spítalinn bíla sem notaðir eru til að aka starfsfólki milli Fossvogs og Hringbrautar. Slíkar ferðir eru farnar á kortersfresti á dagvinnutíma og eru vel nýttar. „En þó við séum með skutluna á milli þessara stóru staða, Hringbrautar og Fossvogs, þá erum við með starfsemi á svo mörgum öðrum stöðum,“ segir María.

Sérfræðingar með aðsetur annaðhvort á Hringbraut eða í Fossvogi þjóni sjúklingum sem eru til dæmis á Kleppi, Grensás, vestur á Landakoti og víðar. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×