Viðskipti innlent

Borgaðu með debetkorti í Strætóappinu

Stefán Árni Pálsson skrifar
Daði Ingólfsson, yfirmaður upplýsingatæknimála Strætó bs. tekur við verðlaunum fyrir besta appið 2014.
Daði Ingólfsson, yfirmaður upplýsingatæknimála Strætó bs. tekur við verðlaunum fyrir besta appið 2014. mynd/aðsend
Strætó var að setja í loftið nýja útgáfu af appi sínu, sem gerir farþegum kleift að borga í Strætó með debetkortum auk kreditkorta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Strætó.

Nýjungin kemur til móts við þann mikla fjölda fólks sem notar debetkort að staðaldri.

Borgun hefur með nýrri þjónustu gert Strætó mögulegt að stíga þetta mikilvæga skref. Ragnar Einarsson, verkefnastjóri hjá Borgun, hefur fylgt verkefninu eftir og er ánægður með útkomuna: „Það er okkur sönn ánægja að taka þátt í þessu spennandi verkefni með Strætó og gera þeim kleift að taka við greiðslum í Strætó appinu hvort sem greitt er með debet- eða kreditkorti. Borgun leggur áherslu á að vera í fararbroddi í greiðslumiðlun hvort sem greiðsla er framkvæmd í hefðbundinni verslun, appi eða á netinu og koma þannig til móts við fjölbreyttar þarfir viðskiptavina okkar.“

Strætóappinu var tekið vel strax frá fyrsta degi og hafa selst hátt í 50.000 snjallmiðar þá þrjá mánuði sem það hefur verið loftinu en í tilkynningunni frá Strætó segir að það sé langt yfir væntingum Strætó og gefi frekari þróun á rafrænum greiðslum byr undir báða vængi.

„Enda var fólki með erlend símanúmer gert kleift að borga í strætó með sömu uppfærslu auk þess sem sala á tímabilskortum á appinu er komið í þróun, og er þeirrar uppfærslu að vænta þegar á þessu ári. Þangað til mun Strætó fjölga greiðsluleiðum og halda áfram að auka og bæta virkni appsins, farþegum til þæginda,“ segir í tilkynningunni.

Nýja útgáfan er nú þegar aðgengileg fyrir Andraoid tæki og er í hefðbundnu samþykktarferli í App-store.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×