Körfubolti

Borgaði 7,5 milljónir fyrir tvo miða á oddaleikinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Það vildi enginn missa af Curry og félögum í gær.
Það vildi enginn missa af Curry og félögum í gær. vísir/getty
Það var eðlilega gríðarlegur áhugi á oddaleik Golden State og Oklahoma í gærnótt og fólk greiddi vel fyrir góð sæti.

Sá sem líklega greiddi mest borgaði 7,5 milljónir króna fyrir tvö sæti á fremsta bekk.

Einhverjir greiddu síðan rúmlega milljón krónur fyrir sæti á öðrum bekk. Það er fáheyrt.

Meðalverð miða á leikinn er sagt hafa verið 120 þúsund krónur en það er næsthæsta miðaverð á leik 7 í úrslitakeppni NBA-deildarinnar. Meðalverð miða á leik Miami og San Antonio árið 2013 var 170 þúsund krónur.

NBA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×