Lífið

Borat á von á barni

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Turtildúfurnar.
Turtildúfurnar. vísir/getty
Leikkonan Isla Fisher á von á sínu þriðja barni með eiginmanni sínum, spéfuglinum Sacha Baron Cohen, sem er hvað þekktastur fyrir að túlka hinn skrautlega Borat.

Samkvæmt heimildum Us Weekly hefur Isla hætt við að leika í kvikmyndinni Now You See Me 2 sem átti að byrja í tökum í nóvember. Er Isla komin um það bil þrjá mánuði á leið.

Isla og Sacha gengu í það heilaga í París í mars árið 2010. Þau eiga fyrir dótturina Olive, sex ára og Elula, fjögurra ára.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×