Körfubolti

Boogie hlóð í svo svakalega og sögulega þrennu að LeBron fór á Twitter | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Anthony Davis stekkur í fangið á Cousins eftir leikinn í nótt.
Anthony Davis stekkur í fangið á Cousins eftir leikinn í nótt. vísir/getty
New Orleans Pelicans vann endurkomusigur á heimavelli í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar að liðið lagði Chicago Bulls, 132-128, í tvíframlengdum leik.

Pelicans var mest 17 stigum undir en stjörnutvíeykið í teignum hjá heimamönnum, DeMarcus „Boogie“ Cousins og Anthony Davis, settu liðið á bakið og báru það í átt að öðrum sigri New Orleans í röð. Það er nú komið upp í sjötta sætu vesturdeildarinnar.

Davis hefur verið á miklum skriði að undanförnu og skoraði 34 stig í nótt en það var Boogie sem fór gjörsamlega hamförum. Hann hlóð í rosalega þrennu með 44 stigum, 24 fráköstum og tíu stoðsendingum.

Frammistaðan var svo mögnuð að besti körfuboltamaður heims, LeBron James, sá ekkert annað í stöðunni en að hrósa miðherjanum á Twitter fyrir þessa „sjúku tölfræðilínu“ eins og LeBron orðaði það.

Cousins skoraði sjö stig í seinni framlengingunni þar sem hann setti niður þrist, snúningstvist í teignum og tvö vítaskot þegar að átta sekúndur voru eftir.

Frammistaðan var söguleg því Cousins varð sá fyrsti sem skorar yfir 40 stig, tekur 20 fráköst eða fleiri og gefur tíu stoðsendingar eða fleiri síðan goðsögnin Kareem Abdul-Jabbar gerði það fyrir Los Angeles Lakers árið 1972.

Finninn Lauri Markkanen átti góðan leik fyrir Bulls en hann skoraði fjórtán stig og tók 17 fráköst en það dugði ekki fyrir Chicago sem er í basli í austurdeildinni.

Bulls er í tólfta sæti með 18 sigra og 29 töp en það er fjórum sigurleikjum frá sæti í úrslitakeppninni.

Frammistöðu Boogie Cousins frá því í nótt má sjá í myndbandinu hér að neðan.

Úrslit næturinnar:

Charlotte Hornets - Sacramento Kings 112-107

Atlanta Hawks - Utah Jazz 104-90

Houston Rockets - Miami Heat 99-90

Memphis Grizzlies - Philadelphia 76errs 105-101

Milwaukee Bucks - Phoenix Suns 109-105

New Orleans Pelicans - Chicago Bulls 132-128

Dallas Mavericks - Washington Wizards 98-75

Denver Nuggets - Portland Trail Blazers 104-101

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×