Enski boltinn

Bony kominn til Stoke

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Bony er mættur til Stoke.
Bony er mættur til Stoke. mynd/stoke city
Stoke City staðfesti í hádeginu að framherjinn Wilfried Bony væri kominn til félagsins.

Bony kemur til félagsins frá Man. City og kemur að láni eins og aðrir leikmenn Man. City sem eru að hafa vistaskipti þessa dagana.

Bony sló í gegn hjá Swansea á sínum tíma en hefur aldrei náð sér almennilega á strik með City.

Það vita þó flestir hvað í honum býr og verður áhugavert að sjá hvernig hann plumar sig hjá gamla Íslendingafélaginu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×