Viðskipti innlent

Bónusgreiðslur til bankastarfsmanna: Verðbréfafyrirtækjum hugsanlega gefinn meiri slaki

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis, segir að til greina komi að gera greinarmun á innlánsstofnunum og verðbréfafyrirtækjum, í ljósi nýs frumvarps Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, þess efnis að almennum starfsmönnum bankakerfisins verði heimilt að fá bónusgreiðslur sem nemi mörg hundruð prósentum árslauna þeirra. Haldið verði í þær ströngu reglur sem gilt hafi um bónusa til starfsmanna innlánsfyrirtækja en að verðbréfafyrirtækjum verði gefinn meiri slaki.

„Það hefur komið fram það sjónarmið fyrir efnahags- og viðskiptanefnd að það gæti verið gagnlegra að skipta stofnunum upp í innlánsstofnanir sem eru kannski í viðskiptum við neytendur og eru að fara með innlán fólks og síðan önnur verðbréfafyrirtæki sem ættu að gilda aðrar reglur um og kannski frjálslegri því þau eru í viðskiptum við fagfjárfesta sem kunna fótum sínum forráð,“ sagði Frosti í Klinkinu á Stöð 2 í kvöld.

Sjá einnig: Þingmaður segir galið að hækka bónusa

Í frumvarpinu er ákvæði sem gerir ráð fyrir að hámark bónusa ofan á laun starfsmanna fjármálafyrirtækja geti hæst farið í 25 prósent af heildarlaunum. Ákvæðið tekur til framkvæmdastjóra og lykilstarfsmanna en ekkert þak verður á bónusgreiðslur til almennra starfsmanna.

„Það hafa komið umsagnir í þá veru að það sé ekki óhætt að gera þetta með þessum hætti og það hafa komið fram sjónarmið, sérstaklega hvað varðar stórar innlánsstofnanir sem eru að vissu leyti reknar með ríkisábyrgð á innistæðum og eru kannski í markaðsráðandi stöðu, að fara að hvetja almenna starfsmenn þeirra til dáða á kostnað almennings í landinu,“ sagði hann og bætti við að vinnan sé ekki komin það langt að búið sé að útfæra mögulega breytingu á kerfinu. Hann gerir þó ráð fyrir að nefndin muni koma með tillögu til breytinga.

„Það hefur komið til álita að fresta þessu, gefa ráðuneytinu tækifæri til að vinna þetta yfir sumarið, reglur sem tækju tillit til þeirra umsagna sem hafa borist og þeirra sjónarmiða sem hafa komið fram,“ sagði Frosti.

Viðtalið við Frosta má sjá í heild í spilaranum hér fyrir ofan






Fleiri fréttir

Sjá meira


×