Innlent

Bónusgreiðslur hjá KSÍ: Geir fékk á aðra milljón króna eftir EM-ævintýrið

Heiðar Lind Hansson skrifar
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, fékk eins mánaðarlaun í bónus eins og aðrir starfsmenn KSÍ.
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, fékk eins mánaðarlaun í bónus eins og aðrir starfsmenn KSÍ. Vísir/AFP
Stjórn KSÍ hefur samþykkt að greiða starfsfólki sambandsins launauppbót sökum álags í tengslum við þátttöku A-landsliðs karla á EM í Frakklandi í sumar. Uppbótin samsvarar mánaðarlaunum hvers starfsmanns.

Í samtali við Fréttablaðið sagði Gylfi Þór Orrason gjaldkeri og formaður fjárhagsnefndar KSÍ að tillaga um launauppbótina hefði verið samþykkt í júlí, en Geir Þorsteinsson formaður bar upp tillöguna. Ekki var gert ráð fyrir greiðslu til hans í henni. Á stjórnarfundi í ágúst bar Gylfi fram tillögu fjárhagsnefndar þess efnis að Geir fengi greiðslu líkt og aðrir starfsmenn.

Geir vék af fundi þegar tillagan var afgreidd. „Það var rosalega mikið álag á starfsfólkinu okkar í sumar,“ segir Gylfi um ákvörðunina.

Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH.vísir/Anton Brink
„Starfsfólk KSÍ hefur unnið langt umfram það sem umsamið er og þá var komið til móts við það eins og í öðrum fyrirtækjum,“ segir Geir Þorsteinsson. Hann segir greiðslurnar innan eðlilegra marka.

Ekki fékkst gefið upp hversu háar greiðslurnar námu að krónutölu. Samkvæmt ársreikningi KSÍ 2015 námu laun og launatengd gjöld 136,1 milljón krónur og því má ætla að uppbótin nemi nokkrum milljónum króna. 

Samkvæmt tekjublaði DV námu laun Geirs 1.390 þúsund krónur á mánuði í fyrra.

„Ég verð að viðurkenna að mér finnst þetta í hæsta máti óeðlilegt," segir Jón Rúnar Halldórsson formaður knattspyrnudeildar FH um málið. Hann segir að KSÍ þurfi að upplýsa betur um hvaða heimildir séu fyrir greiðslunum og hvernig þær komu til. Að öðru leyti vildi hann ekki tjá sig um málið. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×