Körfubolti

Bonneau óstöðvandi í Ásgarði

Njarðvíkingurinn Stefan Bonneau átti enn einn stórleikinn fyrir Njarðvík gegn Stjörnunni í gær.

Bonneau skoraði 34 stig og setti þar af niður sjö þriggja stiga skot. Hann tók líka 8 fráköst og varði þó nokkuð af skotum. Það var lyginni líkast að fylgjast með honum.

Þetta er einn skemmtilegasti leikmaður sem hefur ratað í íslenska boltann í háa herrans tíð.

Þrátt fyrir stórleik hans tapaði Njarðvík leiknum með tveimur stigum og Stebbi og félagar þurfa því að stíga aftur upp í oddaleiknum í Njarðvík.

Hluta af tilþrifum hans má sjá í spilaranum að ofan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×