Menning

Bölvun grænu dísarinnar

Stefán Pálsson skrifar
Í glasinu fyrir framan ungu konuna er ljósgrænn vökvi. Þau sitja í þögn. Listamaðurinn sem skapaði þetta heimsfræga verk árið 1876 var Edgar Degas, einn af upphafsmönnum impressjónismans í málaralist.
Í glasinu fyrir framan ungu konuna er ljósgrænn vökvi. Þau sitja í þögn. Listamaðurinn sem skapaði þetta heimsfræga verk árið 1876 var Edgar Degas, einn af upphafsmönnum impressjónismans í málaralist.
Stúlkan á myndinni situr við borð á veitingahúsi og horfir tómum augum fram fyrir sig. Andlitið er lífvana og líkamsstaðan ber vott um uppgjöf. Hún er þokkalega til fara, í það minnsta miðað við manninn við hliðina á henni sem reykir pípu dauflegur á svip. Í glasinu fyrir framan ungu konuna er ljósgrænn vökvi. Þau sitja í þögn.

Listamaðurinn sem skapaði þetta fræga verk árið 1876 var Edgar Degas.Rytjulegi karlinn á myndinni var félagi hans og starfsbróðir, Marcellin Desboutin, en stúlkan var Ellen Andrée, leikkona og fyrirsæta.

Óhætt er að segja að verkið hafi fallið í grýttan jarðveg og vakið reiði sem nútímafólk á bágt með að skilja að unnt sé að kveikja með málverki. Gagnrýnendur tættu það í sig fyrir ljótleika þegar myndin var fyrst sýnd skömmu eftir að hún var tilbúin. Sextán ár liðu uns næsti sýningarstjóri lagði í að sýna verkið á ný og enn urðu viðbrögðin á sömu leið. Reiðir listvinir kröfðust þess að ófögnuðurinn yrði fjarlægður úr sýningarsalnum.

Árið eftir var myndin sýnd í Lundúnum og enn urðu viðbrögðin hörð. Undir lok nítjándu aldar var siðprúðum listasafnsgestum misboðið að sjá ölvaða konu á málverki. Listgagnrýnendur kölluðu verkið hneisu og einn þeirra sló því meira að segja föstu að stúlkan á myndinni hlyti að vera skækja. Í Bretlandi fékk verkið þó að hanga uppi, ekki hvað síst vegna þess að það styrkti í sessi staðalmyndir þarlendra um hina siðspilltu nágranna sína handan Ermarsunds.

Í Bretlandi var málverkinu gefið nýtt heiti L’Absinthe, Absint-glasið eða Absint-drykkjukonan. Vísaði það í görótta græna drykkinn á myndinni, alræmdustu áfengistegund þeirra tíma.

Absint hafði áratugina á undan breiðst ótrúlega skjótt út um heiminn. Mestar voru þó vinsældir þess í Frakklandi, þar sem það var nálega orðið þjóðardrykkur. Absint-drykkja brúaði stéttabilið, þar sem það var jöfnum höndum drukkið af fátækum verkamönnum og efri millistétt samfélagsins. Í hugum flestra var þó absint einkum tengt listaspírum og bóhemum. Ófáir rithöfundar og myndlistarmenn vísuðu til þess í verkum sínum, einkum þeir sem hallastir voru undir sopann. Af frægum slíkum mátti telja málarana Vincent van Gogh og Henri de Toulouse-Lautrec. Nafnkunnir ofdrykkjumenn áttu vafalítið stóran þátt í að þessi tegund fékk öðrum fremur á sig illt orð.

Allra meina bót

Absint er rammsterk áfengistegund, með vínandainnihald á bilinu 55-70%. Það er þó yfirleitt þynnt nokkuð út fyrir neyslu, en absint þykir prýðilegur lyst­auki á undan mat. Við framleiðsluna er notast við ýmsar jurtir sem gefa drykknum afgerandi bragð og hinn einkennandi græna lit. Má þar nefna plöntuna ísóp, fenniku eða fennel, anís og síðast en ekki síst malurtarrót.

Malurtin nefnist Artemisia absinthium á latínu og dregur áfengistegundin nafn sitt af því. Er plantan raunar nafngjafi fleiri tegunda úr heimi Bakkusar, því á þýsku nefnist hún Wermut. Drykkurinn vermút heitir eftir henni, en blöð malurtarinnar eru notuð við framleiðslu á vermút.

Það voru þó ekki eiginleikar malurtar sem krydds í áfengi sem fyrst vöktu athygli manna á henni. Hún er einhver elsta lækningajurt sem þekkt er og var talin koma að gagni við hinum ýmsu kvillum – einkum hvers kyns verkjum. Sagan segir raunar að absint-drykkurinn hafi í fyrstu verið hugsaður sem mixtúra og er uppfinning hans eignuð nafngreindum frönskum lækni sem flúði til Sviss árið 1792 í umróti frönsku byltingarinnar. Töframeðal sitt hafi læknirinn kallað „grænu dísina“ (franska: La fée ferte) vegna hins skringilega græna litar. Það nafn átti lengi eftir að loða við drykkinn.

Ef marka má þessa frásögn gekk uppskrift doktorsins franska manna á milli í Couvet-héraðinu í Neu­châtel þar til athafnamaður nokkur festi kaup á henni, ekki með grasalækningar í huga heldur til snapsaframleiðslu. Aðrir benda á að bændur í Neuchâtel hafi um miðja átjándu öld verið kunnir fyrir malurtarsnapsa sína.

Hvað sem þeirri forsögu líður hófst fjöldaframleiðsla á absint í Sviss á fyrstu árum nítjándu aldar. Fjölskyldufyrirtækið Pernod Fils ruddi brautina. Árið 1805 hóf það framleiðslu og gat þá afkastað að jafnaði sextán lítrum á dag. Þegar komið var fram á árið 1850 nam dagsframleiðslan 20 þúsund lítrum.

Frá Sviss barst absint-hefðin til nágrannalandanna og reyndust Frakkar sérstaklega móttækilegir. Skilin milli áfengis sem vímugjafa og læknislyfs voru enn óljós á nítjándu öld og fengu læknar franska hersins tröllatrú á absint sem fyrirbyggjandi lyfi við blóðkreppusótt sem herjaði mjög á hermenn í stríðinu í Alsír á árunum 1844-47. Hermennirnir fengu sinn daglega absint-skammt, vöndust á bragðið og þegar herdeildirnar sneru aftur heim að stríði loknu rauk neysla á tegundinni upp í Frakklandi.

Í fyrstu voru þó einkum meðlimir borgarastéttarinnar sem gátu leyft sér munaðinn, enda absint framan af frekar dýr drykkur. Sú trú var almenn í Frakklandi að heilnæmt væri að drekka staup af sterku áfengi áður en sest væri að kvöldverðarborði til að örva matarlyst og bæta meltingu. Mörg hundruð ólíkar tegundir snapsa voru fáanlegar í því skyni, en absint var val efnameiri borgara og þegar verðið tók að lækka gátu fleiri þjóðfélagshópar leyft sér slíkan munað hvunndags.

Á tímabilinu 1880-1910 hríðféll verðið á absint með tilkomu fjölda nýrra framleiðenda, stórra jafnt sem smárra. Framleiðslan jókst og absint var komið á hvers manns borð. Það var drukkið af konum jafnt sem körlum, háum sem lágum og ríkum sem snauðum. Árið 1874 var ársneysla Frakka af drykknum græna 700 þúsund lítrar, en árið 1910 var talan komin upp í 36 milljónir. Absint gerði harða hríð að víninu sem eftirlætisdrykkur Frakka, en vínræktendur áttu á sama tíma í miklum vandræðum vegna plöntusjúkdóma sem herjuðu á vínekrurnar.

Syrtir í álinn

En framleiðsluaukningin og verðhrunið var í mörgum tilfellum á kostnað gæða. Absint-brugghús skutu upp kollinum eins og gorkúlur og störfuðu án nokkurs eftirlits. Margir framleiðendur freistuðust til að nota aukaefni, sem í sumum tilvikum reyndust háskaleg. Vafalítið átti slíkt glundur stóran þátt í því að athygli læknavísindanna tók að beinast að absint. Franski sálfræðingurinn Valentin Magnan, sem var sérfræðingur í rannsóknum á samspili geðsjúkdóma og áfengisneyslu, komst að þeirri niðurstöðu að absint-drykkjumönnum væri hættara við að fá ofskynjanir. Tilgáta hans var sú að efni í malurtarrótinni hefðu þessi áhrif á heilann. Til að sannreyna þetta gerði hann tilraunir á dýrum sem hann lét innbyrða malurt og tókst að sýna fram á einkenni eitrunar.

Í dag draga vísindamenn þessar niðurstöður Magnans í efa og benda á að þótt jurtin hafi vissulega að geyma efni sem reynst geta spendýrum skaðleg, hafi magn þeirra í absint-drykknum yfirleitt verið talsvert undir hættumörkum. Á nítjándu öld höfðu menn þó enga ástæðu til að efast um rannsóknirnar og þá niðurstöðu að absint væri líklegra en aðrar áfengistegundir til að hrinda af stað geðveiki. Íslendingar, sem lítið þekktu til drykkjarins voru jafnsannfærðir og aðrir um skaðsemina. Þannig flutti íslenskt blað þá frétt árið 1911 að hagfræðiskýrslur sýndu að af 9.938 geðveikistilfellum í Frakklandi væri absint orsök 4.882 þeirra. Verða það að teljast furðunákvæmar tölur.

Absint varð sérstakur skotspónn ört vaxandi bindindishreyfingar í Evrópu undir lok nítjándu aldar og varð ímynd þess sífellt tengdari ógæfu og örvilnan, meðal annars í bókmenntum og myndlist. Hryllilegur atburður í Sviss árið 1905 reyndist svo kornið sem fyllti mælinn.

Svissneskur bóndi að nafni Jean Lanfray skaut þá eiginkonu sína og tvær barnungar dætur til bana og reyndi að drepa föður sinn í ölæði. Lanfray var langt leiddur alkóhólisti sem sagður var drekka allt að fimm lítra af víni á degi hverjum. Daginn örlagaríka hafði hann setið að sumbli og drukkið óhemjumagn af víni, koníaki, brandíi og fleiri áfengistegundum.

Verjendur morðingjans gripu hins vegar til þeirrar málsvarnar að kenna tveimur absint-glösum sem hann drakk fyrr um daginn um morðin og að eitrið hefði í raun tekið af honum völdin. Ekki féllst dómarinn á þá málsvörn og hlaut Lanfray 30 ára fangelsisdóm, en slapp þó við dauðadóm vegna þess að drápin voru framin í ölæði. Hann hengdi sig fáeinum dögum síðar í fangaklefa sínum.

Absint-morðin í Sviss fengu gríðarlega athygli í evrópskum dagblöðum. Í heimalandinu reis upp reiðibylgja þar sem tugþúsundir hvöttu til þess að drykkurinn yrði bannaður með lögum. Svissneska þingið samþykkti að binda slíkt bann í stjórnarskrá. Absint-framleiðendur töldu sig illa svikna og kenndu því um að á þingi ættu sæti margir gamlir aðalsmenn sem tengdust vínframleiðslu og væru að losa sig við keppinaut.

Á næstu árum var absint bannað í hverju landinu á fætur öðru, þar á meðal í Frakklandi. Þótt nokkur lönd heimiluðu það ennþá varð neyslan aldrei svipur hjá sjón. Breyttar reglugerðir Evrópusambandsins hafa á síðustu árum opnað á ný fyrir framleiðslu á absint, þó án tiltekinna aukaefna. Ólíklegt er þó að græna dísin öðlist aftur sinn gamla sess meðal einbeittra evrópskra drykkjumanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×