Innlent

Bólusetningar að lögum: Undirskriftarsöfnun hafin

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/getty
Hafin er undirskriftarsöfnun á netinu þar sem skorað er að stjórnvöld að gera bólusetningar að skyldu. Vill hópurinn að bólusetningar verði settar í lög en um 900 manns hafa ritað nafn sitt á listann. Undirskriftarsöfnunin hófst í þessari viku.

Ekki kemur fram á síðunni hver það er sem stendur fyrir söfnuninni né hvort eða hvenær listinn verður afhentur stjórnvöldum. Þó kemur fram að markmið hópsins séu tuttugu þúsund undirskriftir.

Hátt í tólf prósent barna á Íslandi eru óbólusett. Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir það áhyggjuefni en segir að rætt hafi verið um að krefjast þess að börn séu bólusett til að þau geti gengið í skóla hér á landi. Hann segir að hægt sé að fara slíka leið á leikskólum ef börnum sem eru bólusett heldur áfram að fækka.

Listann má sjá hér.


Tengdar fréttir

Tólf prósent barna óbólusett: „Þetta er bara fákunnátta“

Barnalæknir sem upplifði mislingafaraldur hér á landi á áttunda áratugnum segir áhyggjuefni að allt að tólf prósent foreldra bólusetji ekki börn sín. Hann segir fákunnáttu foreldra um að kenna þar sem þeir þekki ekki sjúkdómana og áhrif þeirra.

Vill ekki bólusetja börnin sín

Þriggja barna móðir segist telja betra að sneiða hjá bólusetningum og miðar við slæma reynslu sína af þeim. Foreldrum hér á landi sem vilja hafna bólusetningum fyrir börn sín fjölgar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×