Glamour

Bold Metals í BBHMM

Ritstjórn skrifar
Glamor
Það þekkja flestir Real Techniques förðunarburstana, sem koma úr smiðju bresku Pixiwoo systranna Nic og Sam.

Burstarnir hafa svo sannarlega slegið í gegn, og má segja að þær systur hafi nú náð nýjum hæðum í vinsældum burstanna. 

Glöggir áhorfendur hafa tekið eftir að í broti úr nýju myndbandi frá Rihönnu má nefnilega sjá kinnalitabursta úr lúxuslínu systranna sem nefnist Bold Metals. 

Myndbandið kemur út í heild sinni þann 2. júlí. 

Fylgstu með Glamour á Instagram og Facebook. 






×