Erlent

Boko Haram ræna fleiri stúlkum

Liðsmenn Boko Haram.
Liðsmenn Boko Haram. Vísir/AFP
Að minnsta kosti tuttugu ungum konum var rænt í Nígeríu um helgina og er skæruliðasveitum Boko Haram kennt um verknaðinn. Árásin var gerð aðeins í átta kílómetra fjarlægð frá þorpinu þar sem samtökin rændu um 200 ungum skólastúlkum fyrir um tveimur mánuðum síðan.

Mennirnir komu inn í þorpið um miðjan dag vel vopnum búnir og klæddir í hermannabúninga. Ekkert hefur heyrst frá þeim enn en mannrán af þessu tagi eru orðin afar algeng í norðausturhluta Nígeríu þar sem Boko Haram er hvað sterkastir. Yfirleitt er farið fram á lausnargjald frá fjölskyldum stúlknanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×